12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 29. október 2026

Útvarpsfréttir.

Formaður Kennarasambands Íslands segir stefna í að forsendur núverandi kjarasamnings bresti og telur ólíklegt að félagsmenn samþykki breytingar á honum.

Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið.

Formaður Sameykis segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi í vikunni. Ljóst sé að borgin hafi farið of geyst í uppsagnir og þurft að bakka með sumar þeirra.

Æðstu leiðtogar Spánar eru komnir til héraðsins Castilla-La Mancha til að skipuleggja viðbrögð eftir mannskætt lestarslys í gær.

Áform um nánara samstarf Evrópusambandsins og Kanada verða kynnt á leiðtogafundi í Montreal í dag. Hugmyndir um einhvers konar aukaaðild Kanada að sambandinu hafa hins vegar verið slegnar út af borðinu.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra. Stofnunin hefur fengið sjö ábendingar vegna starfsemi Vopnabúrsins.

Barnamálaráðherra vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi og færa barnabætur uppá tvo til þrjá milljarða frá hátekjufólki til fátækustu foreldranna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
    ,