14:03
Á tónsviðinu
Óresteia

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þetta er síðasti þátturinn af þremur þar sem fjallað hefur verið um Trójustríðið og tónverk og bókmenntir sem því tengjast. Fyrsti þátturinn fjallaði um Trójustríðið sjálft, annar þáttur um heimferð Ódysseifs, eins helsta foringja Grikkja, að stríðinu loknu, og í þessum þætti er fjallað um heimkomu annars foringja úr Trójustríðinu, Agamemnons. Úr þeirri heimkomu varð mikil sorgarsaga sem sögð er í þríleiknum „Óresteiu“ eftir forngríska leikskáldið Aiskýlos. Meðal þeirra tónverka sem koma við sögu í þættinum eru óperan „Óresteia“ eftir Sergei Tanejev, söngverkið „Klýtemnestra“ eftir Rhian Samuel, óperan „Elektra“ eftir Richard Strauss og óperan „Ifígenía í Táris“ eftir Christoph Willibald Gluck. Einnig verða flutt brot úr útvarpshljóðritun frá árinu 1995 á leikritinu „Agamemnon“ eftir Aiskýlos, fyrsta leikritinu í Óresteiu-þríleiknum. Þar fer Margrét Helga Jóhannsdóttir með hlutverk Klýtemnestru drottningar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Kristján Guðjónsson.

Aðgengilegt til: 27. janúar 2027
Lengd: 53 mín.
    ,