12:42
Þetta helst
Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar sjá þó margir kosti við sameiningarnar og telja að ef rétt verði farið að geti breytingarnar orðið landsmönnum öllum til góða.

Í þætti dagsins verður rætt við dómsmálaráðherra, lögreglumenn og lögreglustjóra og við veltum því upp hvort breytingin feli í sér aukið samstarf og skilvirkni – og hvort hætt sé við að landsbyggðin líði fyrir breytinguna.

Umsjónarmaður: Ólöf Rún Erlendsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 15 mín.
    ,