07:03
Morgunútvarpið
30. janúar - Verkföll, ökklabönd og svefn
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Við vitum öll að góður svefn er mikilvægur -jafnvel með því mikilvægasta í okkar lífi en er jafnvel þráhyggjukennd leit fólks eftir fullkomnum svefni farin að halda fólki vöku á nóttunni? Erla Björnsdóttir sálfræðingur og sérfræðingur í svefni kemur til okkar.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segist ætla að beita sér fyrir því að ökklabönd verði keypt til landsins til þess að fylgjast megi rafrænt með þeim sem sæta nálgunarbanni. Við ræðum það og fleira við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing.

Líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fara vaxandi og hættumat hefur verið uppfært. Við tökum stöðuna með Benedikt Ófeigssyni jarðeðlisfræðingi og fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands.

Thor Aspelund, prófessor í tölfræði, ræðir við okkur um erindi sem hann heldur á morgun: Hvaða áhrif hafa öfgar í neyslu kjöts og annarrar próteinríkrar fæðu á heilsufar?

Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands, ræðir við okkur um yfirvofandi verkföll og samskipti ættingja við skólastjórnendur og kennara.

Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, verður gestur okkar í lok þáttar þegar við gerum upp þátttöku Íslands á HM í handbolta og innviðauppbyggingu hér heima.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,