12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 21.október 2025
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Óvíst er hvort tekst að semja um annað þrep vopnahlés á Gaza. Varaforseti Bandaríkjanna er í tveggja daga heimsókn í Ísrael.

Oddviti minnihlutans í borgarstjórn vill að lögmæti samninga Reykjavíkurborgar við olíufélögin um bensínstöðvalóðir verði kannað af ESA, eftirlitsstofnun EFTA.

Dæmi eru um að fyrstu kaupendur íbúða fái ekki fjármögnun þrátt fyrir að þeir hafi jákvætt greiðslumat eftir að dómur Hæstaréttar féll í vaxtamálinu. Stóru viðskiptabankarnir hafa allir gert hlé á fasteignalánveitingum.

Áhugatrommari sem elskar þungarokk er fyrsti kvenforsætisráðherra í sögu Japans. Hún er afar hægrisinnuð og lýsir sér sjálf sem japanskri Margaret Thatcher.

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari fær tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Hann er sjöundi Íslendingurinn sem hlýtur verðlaunin.

Seðlabankinn sér skýr merki um kólnun í hagkerfinu. Launahækkanir umfram kjarasamninga gera bankanum þó erfitt um vik í baráttu við verðbólguna.

Engar fregnir hafa borist úr Karphúsinu í morgun þar sem samninganefndir Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins funda hvor í sínu lagi. Enn er óvíst hvort sameiginlegur fundur nefndanna verður í dag.

Olíumengun mældist langt yfir mörkum við íbúðarhús á Eskifirði og fjarlægja þarf mengaðan jarðveg. Olían kemur úr gömlum tönkum í nálægum garði.

Anna Kristín Jónsdóttir segir hádegisfréttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,