19:00
Tónleikur
Beethoven
Tónleikur

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Það liggur við að Beethoven hafi stokkið yfir marga áratugi á milli strengjakvartettanna sem hann samdi fyrir 1811 og þeirra sem hann samdi á árunum 1823-26. Höfunareinkennin eru þó að sjálfsögðu mörg þau sömu, en í síðustu strengjakvartettum sínum er eins og hann hafi öðlast innsýn í framtíðina – hann sprengir af sér formið, bæði hið ytra, það er fjögurra þátta formið, og hið innra. Í þessum þætti verður fluttur strengjakvartett eftir Beethoven op. 130 í B-dúr, sem er í sex köflum, sem var í hæsta máta óvenjulegt á þessum tíma.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,