Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í tilefni af þjóðhátíðardeginum á morgun var fjallað um íslenskt samfélag og þróun þess, stöðu og horfur. Fyrst ræddu viðmælendurnir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, um árin undir Dönum og sjálfstæðisbaráttuna. Þau eru sammála um að hér sé gott samfélag en auðvitað megi gera betur á ýmsum sviðum.
Björn Malmquist fjallað um stjórnmál í Evrópu, og heiminum öllum raunar. Fundur sjö helstu iðnríkja heims fer nú fram í Kanada og þar verða tollar og hernaður Rússa í Úkraínu einkum til umræðu.
Sigyn Blöndal flutti pistil frá Filippseyjum. Hún talaði m.a. um sjálfstæðisbaráttu Filippseyinga, þjóðfána þeirra og eldfjöll.
Tónlist:
Alparós - Vilhjálmur Vilhjálmsson og Elly Vilhjálms,
Three wooden crosses - Randy Travis,
I should have known better - Bítlarnir.



Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Dregnar eru fram nokkrar af þeim íslensku plötum sem komu út árið 1985, en það ár komu óvenju fáar plötur út með frumsaminni tónlist. Lögin sem hljóma í þættinum eru Himnalagið með Grafík, Stúdentshúfan með Bjartmari Guðlaugssyni og Pétri W. Kristjánssyni, Kona með Bubba Morthens, La-líf með Smartband, Móðurást með Possibillies, Hitt lagið með Fásinnu, Steini með Skriðjöklum, Can't Walk Away með Herberti Guðmundssyni og Waiting For An Answer með Cosa Nostra.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við kynntum okkur í dag starfsemi Droplaugastaða hjúkrunarheimilis sem fékk alþjóðlega viðurkenningu síðastliðið haust og hvatningarverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða og formaður Öldrunarráðs Íslands kokm í þáttinn og sagði okkur frá starfseminni, hvað Eden heimili felur í sér, verðlaununum og því helsta sem er á döfinni hjá þeim.
Við heyrðum svo í Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur, verkefnastjóra Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra sem haldin verður 18.-22.júní. Þar verður fjölbreytileikanum fagnað og markmiðið er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Elísabet Ögn sagði okkur betur frá hátíðinni sem meðal annara öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa fyrir.
Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Hrefna Björg Gylfadóttir, stefnustjóri hjá Veitum. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hrefna sagði okkur frá eftirfarandi bókum og höfundum:
Not the end of the world e. Hanna Ritchie
The Hypocrite e. Jo Hamya
Patriot e. Alexei Navalny
Halldór Laxness og Han Kang
Tónlist í þættinum í dag:
Á skútunni minni / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
Constant Craving / K.D. Lang (Mink og K.D. Lang)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hátt í fjögur hundruð mál komu til kasta lögreglunnar á Akureyri um helgina, þar af tvö kynferðisbrotamál og alvarleg líkamsárás. Flest tengjast árlegum Bíladögum á Akureyri.
Ísraelar segja að árásum á Íran verði haldið áfram þar til vopn Írana ógna ekki lengur tilvist þeirra. Á þriðja hundrað hafa fallið í árásum síðustu daga, flestir í Íran.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við frönsku lögregluna vegna rannsóknar á andláti karlmanns og dóttur hans á hóteli í miðbænum um helgina.
Þingflokksformenn segja viðræður um þinglok þokast í átt að samkomulagi - en ekki sér til lands.
Samtal flugmanna og viðvörunarhljóð heyrast á upptöku úr flugstjórnarklefa flugvélar Air India sem hrapaði í síðustu viku.
57 ára karlmaður hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum grunaður um að hafa myrt þingmann Demókrata, og eiginmann hennar á laugardag.
Mögulega úrelt verkaskipting á milli RARIK og Landsnets tefur uppbygging á nýjum raflínum til Þórshafnar og Víkur í Mýrdal. RARIK segir Landsnet ætla að skilja ákveðin landsvæði eftir í kerfisáæltun.
Kjörsókn jókst lítillega hjá kjósendum 35 ára og yngri í síðustu alþingiskosningum. Kosningaþátttaka var meiri hjá konum en körlum.
Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Skagamenn sitja í botnsæti deildarinnar með níu stig eftir ellefu leiki.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Viðar Guðjohnsen er stórtækur leigusali 56 stúdííóíbúða og herbergja í fasteign sem hann á í Reykjavík. Viðar var tiltölulega lítt þekktur í samfélaginu þar til árið 2018 en þá bauð hann sig fram í leiðtogakjöri hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir borgarastjórnarkosningar.
Viðar lýsir því hvernig það kom til að hann byggði húsið sem hann í Mörkinni 8 með þessum íbúðum og herbergjum fyrir meira en þremur áratugum síðan. Húsnæðið er skilgreint sem gistiheimili samkvæmt fasteignamati. Í því eru aðallega litlar stúdíóíbúðir.
Talsverð umræða hefur verið útleigu á litlum íbúðum og herbergjum á höfuðborgarsvæðinu og aðstæður erlends verkafólks á leigumarkaði eftir brunann mannskæða á Hjarðarhaga fyrir nokkrum vikum. Í sumum tilfellum er búið að breyta húsnæðinu án tilskilinna leyfa þannig að brunavörnum er ábótavant í því.
Rætt er við Viðar Guðjohnsen um reynslu hans af því að vera stórtækur leigusali í Reykjavík.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: samfelagid@ruv.is
Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til að læra nýstárlega aðferð til að kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg – prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur, lektor í stærðfræði við Háskóla Íslands - og Samfélagið kíkti við til að heyra meira.
Hitabylgjan sem reið yfir Ísland og Grænland í maí var öfgafull og hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum. Veðurmet féllu á langflestum veðurstöðvum hér á landi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir aukna tíðni öfgaveðurs sem á einungis að geta skollið á á hundrað ára fresti benda til þess að veðurtölfræðin sé öll að breytast.
Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur svo til okkar í lok þáttar - og rifjar upp glæsilegan aðbúnað í hinu sögufræga millilandaskipi Gullfossi.
Tónlist í þættinum:
Berry Chuck - School day (Ring Ring Goes the BellI)
Reverend and the makers - Heatwave in the cold north
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Sígild og samtímatónlist
Kynnir: Rakel Edda Guðmundsdóttir
Tónlistin í þættinum:
Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit í D-dúr, op. 61 eftir Ludwig van Beethoven.
Þættir verksins eru:
1. Allegro ma non troppo
2. Larghetto
3. Rondo. Allegro
María Dueñas leikur einleik á fiðlu ásamt Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar undir stjórn Manfred Honeck.
Hljóðritunin kom út í maí 2023.
Söngur án orða fyrir selló og píanó op. 109 eftir Felix Mendelssohn Bartholdy.
Sheku Kanneh-Mason leikur á selló og Isata Kanneh-Mason á píanó.
Hljóðritunin kom út í september 2022.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Það læddist bók inn á sviðið í vikunni; dularfull, stutt skáldsaga sem heitir Páfagaukagarðurinn og hefur valdið bókafólki heilabrotum því höfundurinn, Akörn, er huldumaður. Eintök af bókinni eru fá, nokkrir útvaldir úr bókmenntasenunni fengu senda bók. Þeir fengu nafnlausan Páfagaukagarð í pósti. Og eitt var sent á Skálda bókabúð. Þar er eintakið til sölu fyrir litlar 30 þúsund en verður þó til sýnis í þrjá mánuði þótt það sé búið að selja hana.
En Hver er Akörn? Skiptir það máli, er ekki höfundurinn dauður og lesandinn á lífi? Er þetta allt úthugsað háð sem beinist að fámennri menningarelítu eða er þetta markaðsstönt? Hvernig koma Mexíkó, ljóð Gyrðis Elíassonar og Alvotech við sögu? Við Tómas Ævar Ólafsson rannsökuðum málið.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Íslenski þjóðbúningurinn á sér langa sögu og ýmsar myndir. Umræðan um hefðir og reglur í kringum notkun þjóðbúninga hefur verið fjölbreytt og raddirnar ólíkar, sumir vilja halda fast í menningararf og hefðir en öðrum finnst mikilvægara að halda menningunni lifandi þannig að hún endurspegli samtímann. Í þættinum veltum við fyrir okkur íslenska þjóðbúningnum og ræðum við þjóðfræðinginn Önnu Kareni Unnsteins, en hán hefur rannsakað hvernig kynbundnar hugmyndir hafa mótað gerð og notkun búninganna og velt fyrir sér hvernig þjóðbúningur framtíðarinnar gæti litið út ef hann endurspeglar fjölbreytileika kynjanna og hinsegin veruleika.
Við heyrum af verðlaunabók þar sem fólk getur valið sér tímabil til að dvelja í og umhverfi þar sem því líður best. Nýverið kom út hjá Dimmu íslensk þýðing Vesku A. Jónsdóttur og Zophoníasar O. Jónssonar á skáldsögu búlgarska höfundarins Georgi Gospodinov, Tímaskjóli. Gauti Kristmannsson rýnir í bókina í þætti dagsins.
Einnig rifjum við upp innslag frá árinu 2020 þar sem tíðni rigningar á þjóðhátíðardaginn er rannsökuð sem og möguleg lausn við henni; veðurvélin.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í ræðu til útskriftarnema í tíunda bekki taldi skólastjóri í Grunnskóla Reyðafjarðar sig vera að vísa í ljóð eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð, eða Lomma eins og hann er kallaður og sagði: “Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.” Tilvitnunin reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar og raunar mjög ólíkur því sem Lommi er þekktur fyrir að skrifa. Þetta er þó viðeigandi á einhvern öfugsnúinn hátt því Lommi er frumkvöðull í að nota forritun og ljóðavélar á skapandi hátt í framúrstefnuljóðlist. Við ræðum við Jón Örn Loðmfjörð um ljóð og vélar.
Alessandra Celesi var heiðursgestur á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði. Eftir hana voru sýndar tvær heimildarmyndir sem gerast með nokkura ára millibili í hverfinu New Lodge í Belfast. Þar er margt sem minnir á fortíðina, The Troubles. Áföllin sitja enn í mörgum íbúanna, þó margt hafi gleymst og borgin hafi breyst. En hvers vegna gerir ítölsk sviðslistakona heimildarmyndir á Norður-Írlandi?
Frænkurnar Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir halda áfram að skrifast á í Lestinni.
Fréttir
Fréttir
Lögreglan hefur haft samband við yfirvöld í Frakklandi og á Írlandi vegna feðgina sem fundust látin á hóteli í Reykjavík um helgina.
Engin stór ágreiningsmál eru á dagskrá þingfundar sem hófst klukkan þrjú. Dómsmálaráðherra bað þingflokksformann Framsóknarflokksins afsökunar við upphaf fundarins.
Fínt svifryk sem berst yfir hafið frá skógareldum í Kanada hefur komið fram á mælum í Reykjavík síðustu daga.
Íranir vilja að Bandaríkin fái Ísrael til að láta af árásum sínum. Árásir hafa gengið á víxl síðustu fjóra daga.
Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum að semja við Klíníkina um niðurgreiðslu fleiri aðgerða fyrir konur með endómetríósu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað að frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til að fylgjast með rannsókn málsins.
Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í fyrra og hann gerði í alþingiskosningum 2021.
Dettifoss komst nýlega í fréttirnar þegar skriða féll þar og frekara jarðrask uppgötvaðist í kjölfarið. Til að gæta öryggis ferðamanna var leiðum við fossinn lokað tímabundið. Þess utan eru þarna næg verkefni en þrjú til fjögur þúsund gestir skoða Dettifoss á dag.
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann
Guðlaug Jónsdóttir segir okkur frá bókunum sínum: Baukað og brallað í Skollavík og Í huganum heim. Hún segir frá því hvers vegna hún fór að skrifa sögur fyrir krakka og lýsir hinni ímynduðu Skollavík. Bókaormurinn Ásthildur segir frá seinni bók Guðlaugar og öðrum bókum með hún hefur lesið nýlega. Anna Frank og Frida Kahlo koma meðal annars við sögu.

Veðurfregnir kl. 18:50.
Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.
Hljóðritun frá lokatónleikum Tíbrár - tónleikaraðar Salarins, sem fram fóru 18.maí sl. Kimi tríó frumflytur Kvöld sorgarinnar eftir Kolbein Bjarnason.
Á undan flutningi heyrist brot úr tónleikaspjalli Axels Inga Árnasonar við Kolbein.
Verkið er samið við fimm ljóð
Ef ég verð að deyja - Refaat Alareer
Endalokin - Konstantinos Kavafis
Gefðu mér gælunafn, fangelsi -Írína Ratúsjínskaja
Úkraínska fyrir aðeins lengra komna - Natasha S.
Guðinn yfirgefur - Anton Konstantinos Kavafis
Um ljóðin og höfunda þeirra
Refaat Alareer (1979–2023) var skáld og prófessor í bókmenntum við Háskólann á Gaza. Hann var myrtur ásamt systkinum sínum og börnum þeirra 6. desember 2023, nokkrum vikum eftir að hann birti ljóðið If I must die á Twitter. Morðingjarnir; leiðtogar Ísraelsríkis ganga enn lausir. Ljóðið er samið á ensku og hefur nú verið þýtt á yfir tvö hundruð tungumál.
Gríska skáldið Konstantions Kavafis (1863–1933) bjó í hinni fornfrægu borg Alexandríu. Ljóðum sínum dreifði hann í þröngum hópi ljóðaunnenda en nú er hann talinn eitt helsta ljóðskáld Grikkja, fyrr og síðar. Ekki er vitað hvort Kavafis hafi ákveðna atburði í huga í ljóði sínu, Endalokunum, sem hann orti árið 1910. Falsfréttir og ófyrirséðar ógnir þessa ljóðs tala hins vegar beint til okkar hér og nú. Í ljóðinu Guðinn yfirgefur Anton (einnig frá 1910) ávarpar hann bardagakappann Anton þegar við honum blasir óumflýjanlegur og endanlegur ósigur.
Árið 1992 gaf Amnesty International út ljóðasafnið Úr ríki samviskunnar með ljóðum 20. aldar skálda hvaðanæva af heimskringlunni í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Meðal höfunda er Írína Ratúsjínskaja (1954–2017). Hún var úkraínsk en skrifaði á rússnesku. Hún var dæmd til sjö ára þrælkunarvinnu árið 1983 en látin laus 1986. Ljóðið er samið á fyrstu dögum hennar í sovésku fangelsi.
Natasha S. (1987) er rússnesk en hefur undanfarin ár búið á Íslandi. Úkraínska fyrir aðeins lengra komna birtist í ljóðabók hennar Máltaka á stríðstímum sem kom út árið 2022. Aftan á bókarkápu skrifar Natasha: „Ótti og hatur eru / aðalvopn áróðurs / ég vel að vera óhrædd / og elska“.
Öll ljóðin eru sungin á frummálinu. Verkið er samið með styrk frá Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.
Einnig heyrist í þættinum tónlist eftir úkraínska tónskáldið Valentin Silvestrov - Serenade for string orchestra [1978].
Auk þess syngur Rim Banna ástarsöngva frá Palestínu.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: samfelagid@ruv.is
Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til að læra nýstárlega aðferð til að kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg – prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur, lektor í stærðfræði við Háskóla Íslands - og Samfélagið kíkti við til að heyra meira.
Hitabylgjan sem reið yfir Ísland og Grænland í maí var öfgafull og hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum. Veðurmet féllu á langflestum veðurstöðvum hér á landi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir aukna tíðni öfgaveðurs sem á einungis að geta skollið á á hundrað ára fresti benda til þess að veðurtölfræðin sé öll að breytast.
Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur svo til okkar í lok þáttar - og rifjar upp glæsilegan aðbúnað í hinu sögufræga millilandaskipi Gullfossi.
Tónlist í þættinum:
Berry Chuck - School day (Ring Ring Goes the BellI)
Reverend and the makers - Heatwave in the cold north
Gepla kom út árið 1952. Gerpla er einskonar skopstæling á Fóstbræðrasögu, sem rekur æviferil fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar Kolbrúnarskálds í upphafi elleftu aldar.
Höfundur les. Hljóðritað 1956.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
eftir Halldór Laxness.
Höfundur les.
(Hljóðiritað 1956)

Veðurfregnir kl. 22:05.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við kynntum okkur í dag starfsemi Droplaugastaða hjúkrunarheimilis sem fékk alþjóðlega viðurkenningu síðastliðið haust og hvatningarverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða og formaður Öldrunarráðs Íslands kokm í þáttinn og sagði okkur frá starfseminni, hvað Eden heimili felur í sér, verðlaununum og því helsta sem er á döfinni hjá þeim.
Við heyrðum svo í Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur, verkefnastjóra Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra sem haldin verður 18.-22.júní. Þar verður fjölbreytileikanum fagnað og markmiðið er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Elísabet Ögn sagði okkur betur frá hátíðinni sem meðal annara öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa fyrir.
Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Hrefna Björg Gylfadóttir, stefnustjóri hjá Veitum. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hrefna sagði okkur frá eftirfarandi bókum og höfundum:
Not the end of the world e. Hanna Ritchie
The Hypocrite e. Jo Hamya
Patriot e. Alexei Navalny
Halldór Laxness og Han Kang
Tónlist í þættinum í dag:
Á skútunni minni / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
Constant Craving / K.D. Lang (Mink og K.D. Lang)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í ræðu til útskriftarnema í tíunda bekki taldi skólastjóri í Grunnskóla Reyðafjarðar sig vera að vísa í ljóð eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð, eða Lomma eins og hann er kallaður og sagði: “Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.” Tilvitnunin reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar og raunar mjög ólíkur því sem Lommi er þekktur fyrir að skrifa. Þetta er þó viðeigandi á einhvern öfugsnúinn hátt því Lommi er frumkvöðull í að nota forritun og ljóðavélar á skapandi hátt í framúrstefnuljóðlist. Við ræðum við Jón Örn Loðmfjörð um ljóð og vélar.
Alessandra Celesi var heiðursgestur á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði. Eftir hana voru sýndar tvær heimildarmyndir sem gerast með nokkura ára millibili í hverfinu New Lodge í Belfast. Þar er margt sem minnir á fortíðina, The Troubles. Áföllin sitja enn í mörgum íbúanna, þó margt hafi gleymst og borgin hafi breyst. En hvers vegna gerir ítölsk sviðslistakona heimildarmyndir á Norður-Írlandi?
Frænkurnar Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir halda áfram að skrifast á í Lestinni.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.
Við hefjum þáttinn á því að hita upp fyrir þjóðhátíðardaginn, 17. júní sem er á morgun. Árbæjarsafnið verður að venju þjóðlegt á morgun og Helga Maureen segir okkur frá undirbúningi og hátíðarhöldum þar á bæ.
Birkir Hrafn Jóakimsson, framkvæmdastjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða, ræðir við okkur um hvernig gengið hefur að malbika síðustu vikur.
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ræðir við okkur um stöðuna á húsnæðismarkaði.
Hótanir um aukna hörku ganga á víxl milli ráðamanna í Ísrael og Íran. Hvort ríki lét eldflaugum rigna yfir hitt í nótt. Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir stöðuna við okkur.
Við förum yfir íþróttir helgarinnar, eins og alltaf á mánudögum.
Nokkur félagasamtök standa í dag að málþingi um áfengismál og þar taka þátt í panelumræðum Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þau verða hér hjá okkur í lok þáttar.


Létt spjall og lögin við vinnuna.
Marína Óska á nýja plötu vikunnar, "Oh little heart"
Við heyrðum nýtt topplag breska listands, það fyrsta í 3 mánuði.
Ný íslensk og erlend tónlist og skemmtilegar sögur.
Allt eins og það á að vera.
Tónlist frá útsendingarlogg 2025-06-16
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Þú Fullkomnar Mig.
GEORGE BAKER SELECTION - Little Green Bag.
STRAX - Havana.
Birnir, GDRN - Sýna mér (ft. GDRN).
Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).
BECK - Tropicalia.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Bros.
EVERYTHING BUT THE GIRL - Missing (Todd Terry Club Remix).
HAIM - Don't Wanna.
Caamp - Let Things Go.
DEFTONES - The Chauffeur.
Á móti sól - Okkur líður samt vel.
BLUR - The universal.
Hjálmar - Morgunóður.
Hvanndalsbræður - Hér er allt.
Warren, Alex - Ordinary.
Carpenter, Sabrina - Manchild (Clean).
Perez, Gigi - Sailor Song.
DONNA SUMMER - I Feel Love.
BLINK 182 - I miss you.
Lynn, Cheryl - Got To Be Real.
ED SHEERAN - Sapphire.
TALK TALK - Living In Another World (80).
TRÚBROT - My Friend And I.
Everclear - Santa Monica (watch the world die).
Jónfrí - Gleymdu því.
ABC - Be Near Me (80).
Kingfishr - Man On The Moon.
THE HOUSEMARTINS - Think for a Minute (80).
Stebbi JAK - Djöflar.
Laufey - Tough Luck.
Tómas Tómasson, Stuðmenn - Á Spáni.
Marína Ósk Þórólfsdóttir - Oh, Little Heart.
Virgin Orchestra - Venus in Scorpio.
MARILLION - Lavender (80).
Wolf Alice hljómsveit - Bloom Baby Bloom.
XXX ROTTWEILER HUNDAR - Reykjavík Belfast.
Bjarni Arason - Geri það með þér.
Mars, Bruno, Lady Gaga - Die With A Smile.
Dina Ogon - Jeg vil ha allt

Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hátt í fjögur hundruð mál komu til kasta lögreglunnar á Akureyri um helgina, þar af tvö kynferðisbrotamál og alvarleg líkamsárás. Flest tengjast árlegum Bíladögum á Akureyri.
Ísraelar segja að árásum á Íran verði haldið áfram þar til vopn Írana ógna ekki lengur tilvist þeirra. Á þriðja hundrað hafa fallið í árásum síðustu daga, flestir í Íran.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við frönsku lögregluna vegna rannsóknar á andláti karlmanns og dóttur hans á hóteli í miðbænum um helgina.
Þingflokksformenn segja viðræður um þinglok þokast í átt að samkomulagi - en ekki sér til lands.
Samtal flugmanna og viðvörunarhljóð heyrast á upptöku úr flugstjórnarklefa flugvélar Air India sem hrapaði í síðustu viku.
57 ára karlmaður hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum grunaður um að hafa myrt þingmann Demókrata, og eiginmann hennar á laugardag.
Mögulega úrelt verkaskipting á milli RARIK og Landsnets tefur uppbygging á nýjum raflínum til Þórshafnar og Víkur í Mýrdal. RARIK segir Landsnet ætla að skilja ákveðin landsvæði eftir í kerfisáæltun.
Kjörsókn jókst lítillega hjá kjósendum 35 ára og yngri í síðustu alþingiskosningum. Kosningaþátttaka var meiri hjá konum en körlum.
Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Skagamenn sitja í botnsæti deildarinnar með níu stig eftir ellefu leiki.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Margrét Erla Maack
Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fjölmenn mótmæli gegn meintum einræðistilburðum Bandaríkjaforseta voru haldin víða um landið á laugardag meðan umfangsmikil hersýning var haldin í höfuðborginni. Ein þeirra sem mótmæltu í New York var Sigríður Benediktsdóttir hagfræðingur sem kennir við Columbia háskóla, og hún kom til okkar að fara yfir ástandið vestanhafs.
Himininn hefur verið hvítur í veðurblíðunni undanfarið, þrátt fyrir að það ætti að heita heiðskýrt. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur útskýrði fyrir okkur hvað veldur.
Svo heyrðum við í Jóhanni Hlíðar á Spáni, sem sagði okkur frá grófri spillingu í pólitíkinni, hitabylgju og afar sérstöku morðmál á norður-Spáni.
Lyfja setti af stað svokallaða vöggugjöf á dögunum, þar sem foreldrar tilvonandi og núverandi geta fengið frían pakka með ýmsum nauðsynjavörum fyrir börn. Þetta var gert í samstarfi við Unu Emilsdóttir sérnámslækni í atvinnu- og umhverfislæknisfræði en hún sérhæfir sig í að draga úr notkun á óæskilegum efnum, sérstaklega þegar kemur að börnum.
Svo heyrðum við í Helga okkar Björns sem stígur á stokk ásamt karlakórnum Fóstbræðrum í tívolí á þjóðhátíðardaginn á morgun.
Fréttir
Fréttir
Lögreglan hefur haft samband við yfirvöld í Frakklandi og á Írlandi vegna feðgina sem fundust látin á hóteli í Reykjavík um helgina.
Engin stór ágreiningsmál eru á dagskrá þingfundar sem hófst klukkan þrjú. Dómsmálaráðherra bað þingflokksformann Framsóknarflokksins afsökunar við upphaf fundarins.
Fínt svifryk sem berst yfir hafið frá skógareldum í Kanada hefur komið fram á mælum í Reykjavík síðustu daga.
Íranir vilja að Bandaríkin fái Ísrael til að láta af árásum sínum. Árásir hafa gengið á víxl síðustu fjóra daga.
Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum að semja við Klíníkina um niðurgreiðslu fleiri aðgerða fyrir konur með endómetríósu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað að frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til að fylgjast með rannsókn málsins.
Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í fyrra og hann gerði í alþingiskosningum 2021.
Dettifoss komst nýlega í fréttirnar þegar skriða féll þar og frekara jarðrask uppgötvaðist í kjölfarið. Til að gæta öryggis ferðamanna var leiðum við fossinn lokað tímabundið. Þess utan eru þarna næg verkefni en þrjú til fjögur þúsund gestir skoða Dettifoss á dag.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Rósa Birgitta Ísfeld.
Rebekka Blöndal - Sólarsamba
The Shivers - Love is ( still ) in the air
Teitur Magnússon - Bros
Ron Everett - Glitter of the city
Laufey - Tough Luck
30/70 - The strut
El Michels Affair - Anticipate
BADBADNOTGOOD - Found a light ( Beale street)
Royal Otis - Moody
Árnasón & Co, Unnsteinn Manuel - Sprettur
Vennna, Yussef Dayes - Sicily´ Box
Feiertag - La Parisienne
Dope Lemon - Rose Pink Cadillac
Nilufer Yanya - Where to look
Miel de Montagne - Le roi soleil
Jónfrí - Gleymdu því
Cody Currie - That stick
I Gemin - The time is right
Lady Wray - Money
Don West - Small Change
Azamiah - Pressure Point
Hannes - Friends
Lamomali - Totem
Katrín Myrra - Til baka
Aron Can, Alaska 1867, Þormóður - Ljósin kvikna
George Riley, Mura Masa - Forever
Gelli Haha - Spit
Neil Frances - Gimme
Selena Gomez, Benny Blanko - Talk
Sudan Archives - Dead
Bríet - Blood on my lips
M.I.A. - Safe
Cyber - Porn Starr
Purity Ring - Many lives
Grimes - Nightmusic
Svala Björgvinsdóttir - Himinn og jörð
Roisin Murphy - Dear Miami ( Bedouin Remix)
Thandii - It only takes 2
Haim - Down to be wrong
Thundercat, Tame Impala - No more lies
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Tónlistarkonan Marína Ósk hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta söng í djassflokki. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin falla henni í skaut, en árið 2022 hlaut hún verðlaunin fyrir lagið The Moon and the Sky sem valið var djasstónverk ársins.
Á plötunni Oh Little Heart fer hún á poppaðri slóðir. Platan er tekin upp læv - hljómsveitin spilar plötuna inn saman sem veitir henni skemmtilegt yfirbragð. Marína settist niður með Margréti Erlu og þær ræddu plötuna, keyrsluna í Bookstore Band sem spilar á hverju kvöldi fyrir fullu húsi og tónlistina í Little Disasters.