
Útvarpsfréttir.

Þáttur um Örn Arnarson skáld, áður fluttur á aldarafmæli hans 1984.
Lesari: Gyða Ragnarsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Íslensk tónlist í tilefni dagsins.
Kynnir: Jónatan Garðarsson
Kór Langholtskirkju - Íslands minni (Ísland ögrum skorið).
Kór Langholtskirkju - Til fánans (Rís þú unga Íslands merki).
Kór Langholtskirkju, Garðar Cortes - Íslands lag (Heyrið vella á heiðum hveri).
Kór Langholtskirkju - Vorvísur 17. júní 1911 (Sjá roðann á hnjúkunum háu).
Kór Langholtskirkju - Íslendingaljóð 17. júní 1944 (Land míns föður landið mitt).
Hljómskálakvintettinn - Vormenn Íslands.
Hljómskálakvintettinn - Ó, blessuð vertu sumarsól.
Kór Áskirkju - Íslandsvísur.
Kór Áskirkju - Minni Ingólfs.
Kór Áskirkju - Yfir voru ættarlandi.
Kór Áskirkju - Úr Íslendingadagsræðu 1904.
Hljómskálakvintettinn - Öxar við ána.
Kór Áskirkju - Úr Íslendingadagsræðu 1904.
Karlakórinn Heimir - Ísland.
Kór Áskirkju - Hver á sér fegra föðurland.
Hljómskálakvintettinn - Heyrðu yfir höfin gjalla.
Hljómskálakvintettinn - Þú álfu vorrar yngsta land.
Higgerson, Thomas Randal, Karlakórinn Heimir - Sefur sól hjá ægi.
Higgerson, Thomas Randal, Karlakórinn Heimir - Ísland, Ísland.
Karlakórinn Heimir - Í fögrum dal = In a fair valley.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Festival March.
Higgerson, Thomas Randal - Ísland.
Gunnar Hrafnsson, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari, Gunnar Gunnarsson - Klementínudans.

Útvarpsfréttir.

Eitt stærsta „Hvað ef“ í íslenskri íþróttasögu er: Hvað ef Jóhannes Jósefsson hefði ekki viðbeinsbrotnað í undanúrslitum grísk-rómversku glímunnar á Ólympíuleikunum í London árið 1908? Hefðu Íslendingar þá mögulega eignast gullverðlaunahafa í frumraun sinni á Ólympíuleikum?
Jóhannes gat ekki beitt sér í undanúrslitaviðureign glímunnar vegna meiðsla sinna og mætti svo ekki til leiks í bronsglímuna, enda með brotið viðbein.
Í áratugi hefur verið fjallað um það á fjölmörgum stöðum hvernig viðbeinsbrot Jóhannesar kostaði Ísland sennilega verðlaun á Ólympíuleikunum 1908 og sagan því mjög lífsseig. En er hún sönn? Viðbeinsbrotnaði Jóhannes kannski bara alls ekki neitt á Ólympíuleikunum? Í þættinum Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg kafar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og sagnfræðingur ofan í málið.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Bein útsending frá hátíðarguðsþjónustu í Dómkirkjunni og hátíðarhöldum á Austurvelli.
Hátíðarmessa í Dómkirkjunni 17. júní á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar, biskup Íslands Guðrún Karls Helguddóttir og séra Sveinn Valgeirsson þjóna. Dómkórinn syngur, kórstjórnandi og organisti er Lenka Mateova
Jón Svavar Jósefsson syngur einsöng við undirleik Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur.
Eftirspil er kórverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við Davíðssálm 116.
Dagskrá á Austurvelli:
Kórinn Graduale Nobili syngur Yfir voru ættarlandi.
Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Kór syngur þjóðsönginn.
Hátíðarræða forseta Íslands.
Kór syngur Hver á sér fegra föðurland.
Fjallkonan flytur ávarp.
Hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika Ég vil elska mitt land.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Árið 1907 kom Friðrik VIII Danakonungur í heimsókn til Íslands. Í tilefni af því samdi Sveinbjörn Sveinbjörnsson við texta eftir Þorstein Gíslason kantötu sem flutt var við móttökuna.
Hún var kölluð Konungskantatan og var eitt viðamesta tónverk sem Íslendingur hafði samið til þessa. Talið var að ekki væri til hljóðritun af henni, en fyrir skömmu fannst í safni Ríkisútvarpsins hljóðritun sem gerð var árið 1957.
Hún verður flutt í þessum þætti: Dómkirkjukórinn syngur og Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur, en einsöngvarar eru Guðrún Á. Símonar og Þorsteinn Hannesson.
Kantatan hafði verið rangt skráð fyrir misskilning og því ekki fundist í spjaldskránni.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir

Íslands þúsund ár - hvar er stemmingin á 17. júní?
Eins og nafnið gefur til kynna fjallar þessi þáttur um elskulegan þjóðhátíðardag okkar Íslendinga, 17. júní. Í honum deilir Þorbjörg Arna nokkrum léttum pælingum um fögnuð þjóðhátíðardaga og kryfur sérstaklega hvað sé eiginlega að frétta af hátíðarhöldum okkar Íslendinga í kringum 17. júní? Þetta viðfangsefni varð fyrir valinu þar sem umsjónarmaður hefur undanfarin ár búið bæði í Noregi og Hollandi og dáðst að því hversu hátíðlega þessar þjóðir halda upp á sína þjóðhátíðardaga. Hún hefur saknað þess mjög að halda upp á stórhátíðir eins og 17. maí í Noregi og Koningsdag í Hollandi og veltir fyrir sér af hverju henni finnst 17. júní ekki haldinn jafn hátíðlegur af hinum almenna Íslendingi.
Umsjón: Þorbjörg Arna S. Jónasdóttir.

Frásögn Torfa Þorsteinssonar frá Haga í Hornarfirði.
Umsjón: Atli Magnússon
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Útvarpsfréttir.

Hljóðritun frá tónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg 16. ágúst 2024
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Anthony Weeden hljómsveitarstjóri
Páll Óskar Hjálmtýsson einsöngvari
Páll Óskar Hjálmtýsson (f. 1970) er sjálfmenntaður söngvari og hefur verið áberandi sem ein skærasta poppstjarna Íslands í rúm 30 ár. Eftir hann liggja fjölmargar upptökur, sólóplötur og samstarfsverkefni með öðrum tónlistarmönnum en plötur hans hafa selst í bílförmum og troðfullt er á tónleika hans og dansleiki.Samstarf hans við tónlistarmanninn Jóhann Jóhannsson gaf af sér ríkulegan ávöxt á fyrstu fjórum sólóplötum Páls Óskars. Af sólóplötum hans má nefna Palli (1995), Seif (1996), Deep Inside (1999), Ef ég sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin heima (2003), sem hann gerði ásamt Moniku Abendroth hörpuleikara. Hann gerði plöturnar Milljón á mann (1994) og Þetta er nú meiri vitleysan (2001) ásamt Milljónamæringunum, Stereo (1998) ásamt hljómsveitinni Casino og umturnaði Eurovision árið 1997 með laginu „Minn hinsti dans“.
Samstarf hans við tónlistarmanninn Jóhann Jóhannsson gaf af sér ríkulegan ávöxt á fyrstu fjórum sólóplötum Páls Óskars. Af sólóplötum hans má nefna Palli (1995), Seif (1996), Deep Inside (1999), Ef ég sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin heima (2003), sem hann gerði ásamt Moniku Abendroth hörpuleikara. Hann gerði plöturnar Milljón á mann (1994) og Þetta er nú meiri vitleysan (2001) ásamt Milljónamæringunum, Stereo (1998) ásamt hljómsveitinni Casino og umturnaði Eurovision árið 1997 með laginu „Minn hinsti dans“. Ómælt er það starf sem hann hefur sinnt í þágu réttindabaráttu hinsegin fólks. Þegar dansplatan Allt fyrir ástina kom út árið 2007 sló hún öll hans fyrri met – og jafnvel annara íslenskra poppara í leiðinni. Henni var afar vel tekið, bæði af gagnrýnendum og almenningi, og samstarf hans við upptökustjórann og lagahöfundinn Örlyg Smára hefur reynst mjög gjöfult. Þá ber að nefna þátt lagahöfundarins Trausta Haraldssonar, en bæði hann og Örlygur Smári hafa samið mörg þekktustu lög Palla gegnum tíðina. Á plötunni voru m.a. smellirnir „Allt fyrir ástina“, „International“, „Betra líf“ og „Er þetta ást?“. Páll Óskar kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á stórtónleikum í Háskólabíói árið 2010 og í Hörpu 2011 við frábærar undirtektir. Færri komust að en vildu og náði upptaka frá tónleikunum metsölu. Auk þess hefur hann sungið með sveitinni við önnur tilefni s.s. á jólatónleikum og á tónleikum árið 2020 sem var sjónvarpað beint á RÚV. Nú vinnur Páll Óskar að plötu með tónlistarmanninum Benna Hemm Hemm og fá tónleikagestir Sinfóníuhljómsveitar Íslands forsmekkinn af því samstarfi á tónleikunum í Eldborg í kvöld.
Bakraddir: Gísli Magna Sigríðarson Ingibjörg Fríða Helgadóttir Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Forleikur Úts.: Þórir Baldursson
Galið gott - Dolce vita Lög: Victor Guðmundsson / Trausti Haraldsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Ingvar Alfreðsson
Spurningar Lag og texti: Birnir Sigurðarson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Þormóður Eiríksson Úts.: Viktor Orri Árnason
Undir álögum Lag og texti: Benni Hemm Hemm og Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Elskar þú mig ennþá? Lag: Sveinn Marteinn Jónsson, Egill Ragnarsson, Jonny Cole Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Ingvar Alfreðsson
Betra líf Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Söngur um lífið Lag: Boudleaux Bryant Texti: Þorsteinn Eggertsson Úts.: Þórir Baldursson
Ást við fyrstu sýn Lag og texti: Magnús Þór Sigmundsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Þú komst við hjartað í mér Lag: Sveinbjörn Bjarki Jónsson (Toggi) Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Þórir Baldursson
Hlé
Einn dans Lag: StopWaitGo Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Viktor Orri Árnason
Er þetta ást? Lag: Jón Andri Sigurðarson, Trausti Haraldsson, Páll Óskar Hjálmtýsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson, Brynhildur Björnsdóttir Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Stanslaust stuð Lag: Jóhann Jóhannsson, Sigurjón Kjartansson, Páll Óskar Hjálmtýsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Ljúfa líf Lag: Gunnar Þórðarson Texti: Þorsteinn Eggertsson Úts.: Þórir Baldursson
Allt fyrir ástina Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Samúel Jón Samúelsson
International Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Samúel Jón Samúelsson

Fréttir
Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þetta er sagan af Tilly Smith, breskri stelpu sem breyttist í hetju á einu andartaki á annan í jólum árið 2004. Hún var stödd með fjölskyldu sinni á strönd í Taílandi þegar risavaxin skjálftaflóðbylgja skall á ströndinni og skildi eftir sig mikla eyðileggingu og dauða. Tilly tókst að bjarga fjölskyldunni sinni og öllum á hótelströndinni frá flóðbylgjunni, en hvernig?
Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Veðurfregnir kl. 18:50.

Dánarfregnir.

Bjarki Sveinbjörnsson rekur sögu Hljómsveitar Reykjavíkur í 12 þáttum frá árinu 1998
Bjarki Sveinbjörnsson rekur sögu Hljómsveitar Reykjavíkur í 12 þáttum frá árinu 1998
Í þættinum verður fjallað um Beehoventónleika Hljómsveitar Reykjavíkur 4. mars árið 1927. Þeir voru haldnir í tilefni af 100 ára dánarafmæli Beethovens, og voru fyrstu eiginlegu Beethoventónleikar sem haldnir voru hér á landi. Verkin sem flutt voru, voru Sinfónía í C-dúr, op 27, Tríó í D-dúr op. 71. nr. 1, Septett í Es-dúr op. 20 og Egmont forleikurinn op. 84. Leiknir verða þættir úr verkunum, í síðari tíma hljóðritunum.

Frásögn Torfa Þorsteinssonar frá Haga í Hornarfirði.
Umsjón: Atli Magnússon

Hjalti Kristgeirsson, hagfræðingur segir frá dvöl sinni í Ungverjalandi 1956-1961.
Gepla kom út árið 1952. Gerpla er einskonar skopstæling á Fóstbræðrasögu, sem rekur æviferil fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar Kolbrúnarskálds í upphafi elleftu aldar.
Höfundur les. Hljóðritað 1956.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
eftir Halldór Laxness.
Höfundur les.
(Hljóðiritað 1956)


Veðurfregnir kl. 22:05.

Í tveimur þáttum er fjallað um stúdentauppreisnina í París árið 1968 en nú eru 50 ár síðan þeir atburðir skóku Frakkland. Frásögnin byggir að verulegu leyti á vitnisburði sjónarvotta. Sagt er frá því hvernig mótmæli stúdenta breyttust á undraskömmum tíma í víðtæka samfélagsádeilu sem lamaði allt Frakkland. Stúdentar yfirtóku háskólana, verkafólk lagði undir sig verksmiðjur og verkföll loguðu um allt landið. Valdinu var sagt stríð á hendur og frjálslegri samfélaghátta krafist. Mótmælagöngur voru haldnar, götubardagar áttu sér stað, pólitísk svartlistaverk skutu upp kollinum og slagorðin báru vott um að ímyndunaraflið hefði verið hafið til valda. Kjörorðið var: „Verið raunsæ, krefjist hins ómögulega“. Unga fólkið hafði fengið nóg af fornum siðaboðum og hvers kyns valdmennsku. Nú átti að gera upp við gamla heiminn og innleiða nýja tíma. Bylting lá í loftinu en uppreisnin var að lokum brotin á bak aftur en ekkert var þó sem áður. Mörk hins mögulega höfðu verið færð út og lífshættir almennings urðu frjálslegri. Allar götur síðan hafa Frakkar talað um fyrir og eftir maí ´68.
Viðmælendur eru :
* Benjamín Magnússon
* Dominique Pledel Jónsson
* Einar Már Jónsson
* Erro
* Friðrik Páll Jónsson
* Gerard Lemarquis
* Ingibjörg Hafstað
* Líney Skúladóttir
* Pétur Gunnarsson
* Sigurður Pálsson
Áður á dagskrá 2018.

Umsjónarmaður er Hulda Sif Hermannsdóttir. Hún ræðir við Jóhann Ingimarsson eða Nóa sem gjarnan er kenndur við húsgagnaverslunina Örkin hans Nóa, sem og húsgagnaverslunina og framleiðandann Valbjörk sem var og hét á árunum 1952 og fram yfir 1970.
Áður á dagskrá 2007.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Einar Örn Jónsson fær til sín góða gesti úr íþróttaheiminum þar sem farið er yfir ferilinn, lífið og tilveruna.
Gestir Einars Arnar á þjóðhátíðardaginn eru Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu og íþróttamaður ársins 2024.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Halla Tómasdóttir sest niður með Andra Frey Viðarssyni á þjóðhátíðardaginn sjálfan. Spjallið er á léttu nótunum og í senn fræðandi. Auk þess velur Halla tónlistina í þættinum.

Steiney Skúladóttir fangar þjóðhátíðardeginu með hlustendum, hressandi tónar og létt stemming.

Útvarpsfréttir.

Stuðmannaplatan Sumar á Sýrlandi kom út á sjálfan þjóðhátíðardaginn árið 1975. Platan fagnar því hálfrar aldar afmæli þann 17. júní í ár. Til að fagna þessum tímamótum mun Siggi Gunnars segja söguna á bakvið plötuna og fá til sín tvo aðdáendur hennar, þá Ara Eldjárn og Snorra Helgason, til þess að hlusta á og ræða um þessa geysivinsælu plötu, sem hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf.
Umsjón og dagskrárgerð: Sigurður Þorri Gunnarsson
Álitsgjafar: Ari Eldjárn og Snorri Helgason
Þulir: Sigvaldi Júlíusson og Vera Illugadóttir

Fréttir

Í Eldhúsverkunum leiðir Rósa Birgitta okkur um heim þar sem suðupottar mæta saxófónum og uppskriftir dansa við diskó. Tónlist og matur – bæði krydduð og ómótstæðileg.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Rósa Birgitta Ísfeld.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson