Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Breska tónskáldið Edward Elgar fæddist árið 1857 og lést 1934. Í þessum þætti verður fjallað um eitt frægasta verk hans, „Enigma-tilbrigðin“ sem hann samdi á árunum 1898-99. Þetta er hljómsveitarverk, stef og 14 tilbrigði, en hvert tilbrigði vísar til einhvers af vinum Elgars og gefur tónskáldið í skyn um hvern sé að ræða hverju sinni með því að setja upphafsstafi eða gælunafn við hvert tilbrigði. Elgar sagði að „Enigma“ eða „Ráðgáta“ væri nafnið á stefinu og önnur ráðgáta væri líka falin í verkinu: sjálft stefið væri kontrapunktur við alþekkt lag. Ýmsir tónlistarmenn hafa reynt að komast að því hvaða lag sé átt við, en engin endanleg lausn fundist á þeirri ráðgátu. Í þættinum verður verkið leikið í nokkrum köflum svo að hlustendur geti áttað sig betur á einkennum hvers tilbrigðis. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Tónlist, ljóð og viðtöl úr safni útvarpsins.
Leikin eru lög eftir Þórarinn Guðmundsson og Karl O. Runólfsson við ljóð kunnra íslenskra skálda, auk þjóðlaga sem útsett hafa verið fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Unglingurinn í skóginum, ljóð eftir Halldór Laxness, flutt af Önnu Kristínu Þórarinsdóttur við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem leikur samnefnt tónverk Karls O. Runólfssonar.
Þorsteinn Ö. Stephenssen flytur ljóð Einars Benediktssonar: Hvarf séra Odds frá Miklabæ, við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem leikur tónverk Karls O. Runólfssonar.
Brot úr viðtali Jóns Magnússonar, fréttastjóra, við Halldór Laxness, sem tekið var 24. janúar 1958, þegar Halldór og Auður Lsxness voru nýkomin heim úr heinmsreisu. Skáldið segir frá þessu ferðalagi þeirra til Bandaríkjanna, Kína og Indlands.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1999)

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum, heilbrigismál,
Í þættinum verður rætt um breytingar í heilbrigðismálum síðust áratugi og hverjar eru helstu ástæður þeirra breytinga. Breytingar á starfsemi sjúkrahúsa og heilsugæslu koma við sögu, tækniþróun og samfélagsbreytingar og fleira er einnig til umsöllunar. Viðmælendur eru Sigríður A. Pálmadóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir.
Prestar og predikari: Sr. Baldur Rafn Sigurðsson
Organisti og kórstjóri: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
Kór/Sönghópur: Kór Njarðvíkurkirkju
Rafn Hlíðkvist, Orgel & Píanó - Jónína Hermannsdóttir, les ritningarlestra.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun
Forspil: Consolation, Franz Liszt
222 Ó, syng þínum Drottni Lag: Andreas P. Berggreen, Texti: Valdimar Briem
270 Dýrð þér, dýrð þér Lag: Pablo Sosa, Texti: Lúk. 2.14 – Kristján Valur Ingólfsson
276 Guð, sem gefur lífið Lag frá Argentínu, Texti: Ólafur Jóhannsson
89a Lærdómstími ævin er Lag: Johann R. Ahle, Texti: Helgi Hálfdánarson
Eftir predikun
83b Sú trú sem fjöllin flytur Lag: Guðmundur Karl Brynjarsson, Texti: Helgi Hálfdánarson
550a Ó, undranáð se, aldrei bregst Lag: Columbian Harmony 1829, Texti: Jóhanna G. Erlingsson
242 Megi gæfan þig geyma Lag: Nickomo Clarke, Texti: Bjarni Stefán Konráðsson
Eftirspil: Toccata BuxWV 157, D. Buxtehude
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins.
Í þessum þáttum leitast Snorri Helgason við að svipta hulunni af leyndadómsfullri ævi breska tónlistarmannsins Nicks Drake. Hann lést einungis 26 ára að aldri af völdum of stórs skammts þunglyndislyfja á heimili foreldra sinna árið 1974. Nick Drake gaf út þrjár hljómplötur á meðan hann lifði sem hlutu litla sem enga athygli á sínum tíma en eru í dag taldar meðal fremstu verka breskrar þjóðlagatónlistar á 20. öld.
Umsjón: Snorri Helgason.
Fjórði og síðasti þáttur. Nick sekkur í þunglyndi og flytur inn til foreldra sinna eftir að platan Bryter Layter fær litla athygli. Hann tekur upp Pink Moon og hverfur aftur í þoku sjúkdóma sinna. Dauði, upprisa og arfleið Nicks Drake.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Rætt var við Finn Friðriksson, félagsmálfræðing og dósent við Háskólann á Akureyri, um málbreytingar og stöðugleika íslenskrar tungu.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Það vakti athygli á sínum tíma þegar okkar menn fengu íslenskt ríkisfang að þeir þurftu flestir að taka sér upp íslensk nöfn og nota samhliða nöfnunum sem þeir báru áður og bera enn. Í þessum þætti heyrum við söguna á bak við þessi íslensku nöfn, hvers vegna þeir urðu Íslendingar og um möguleikann á að spila fyrir íslenska landsliðið. Rætt er við Izudin Daða Dervic, Milan Stefán Jankovic, Ejub Purisevic , Zoran Daniel Ljubicic, Luka Lúkas Kostic, Goran Kristófer Micic, Salih Heimi Porca, Heimi Karlsson, Hajrudin Cardaklija, Rúnar Kristinsson og Guðna Bergsson.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Óðinn Valdimarsson - Í kjallaranum.
Sinatra, Frank - My way.
KK og Maggi Eiríks - Óbyggðirnar kalla.
Góss - Þú ert þar.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Ákall (Ein bisschen Frieden).
Pétur Pétursson - Undir dalanna sól = Sun Valley.
Páll Rósinkranz - Liljan.
Óskar Pétursson - Undir dalanna sól = Sun Valley.
Grant, John - Veldu stjörnu.
Karlakór Reykjavíkur - Undir dalanna sól = Sun Valley.
Randver - Þorravísur.
Kvintett Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Hæ Mambó.
Ellen Kristjánsdóttir - Veldu stjörnu.
Anfinsen, Björn Atle, Djäss - Ný blánar yfir berjamó.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinu í þetta sinn var Elín Björk Jóhannsdóttir, bókmenntafræðingur en hún starfar sem ritstjóri og verkefnastjóri hjá Háskólaútgáfunni. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Björk talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Wifedom: Mrs Orwell’s Invisible Life e. Anna Funder
Huldukonan eftir Fríðu Ísberg
Emily Wilde-serían e. Heather Fawcett
Jonathan Strange and Mr. Norrell e. Susanna Clarke
Guðrún Eva Mínervudóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Kristín Marja Baldursdóttir,
og Sarah Waters og höfundarverk hennar
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því að konur séu útivinnandi, talað vel um aðskilnað svartra og hvítra í Bandaríkjunum og hefur almennt spúið hatri sínu á öllum mögulegu þjóðfélagshópum og trúarhópum.
En mögulega býr eitthvað annað að baki því. Hvað þýðir það að frægum stjórnmálaáhrifavaldi sé sama um að vera kallaður rasisti, nasisti eða eitthvað annað? Hvað þýðir það að einhver skuli storka samfélagslegum normum með þessum hætti og hvað þýðir það að þannig málflutningur fái hljómgrunn hjá hundruð þúsundum eða jafnvel milljónum víða um heim.
Svo fjöllum við um pöndupólitík, en það má segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan í vikunni. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir að fá aðrar pöndur í staðinn en þeirri beiðni hefur ekki verið svarað. Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni?
Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum, heilbrigismál,
Í þættinum verður rætt um breytingar í heilbrigðismálum síðust áratugi og hverjar eru helstu ástæður þeirra breytinga. Breytingar á starfsemi sjúkrahúsa og heilsugæslu koma við sögu, tækniþróun og samfélagsbreytingar og fleira er einnig til umsöllunar. Viðmælendur eru Sigríður A. Pálmadóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Fjallað er um orðið útlitslækningu og hvað það þýði að hægt sé að lækna útlit. Hvaða útlit er verið að lækna og hvenær erum við búin að lækna útlitið? Tekið er viðtal við Ástríði Stefánsdóttur, prófessor og Ástu Jóhannsdóttur, dósent. Farið verður yfir hvort greinarmunur er á milli lýtalækninga og útlitslækninga ásamt því að skoðað er breytta stöðu læknisfræðinnar í markaðsdrifnu hagkerfi.
Umsjón: Þorsteinn Þór Jóhannesson
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Chalmin, David, Labèque, Marielle, Hannigan, Barbara, Labèque, Katia - Lingua ignota.
Hudiyakov, Oleg, Dunayev, Mikhail, Sokolov, Ivan, Smirnov, Konstantin, Musica Viva Chamber Orchestra - Symphony nr.2 for flute, percussion, piano and string orchestra [1965].
Hewitt, Angela - Miroirs : 1. Noctuelles.
Hewitt, Angela - Miroirs : 2. Oiseaux tristes.
Hewitt, Angela - Miroirs : 3. Une barque sur l?océan.
Hewitt, Angela - Miroirs : 4. Alaborada del gracioso.
Hewitt, Angela - Miroirs : 5. La vallée des cloches.
Tríó Mýr - 10 Little Indian.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko kom síðast við sögu í Frjálsum höndum haustið 2024 en þá var hann orðinn forkólfur í iðnframleiðslu þeirri sem stjórn Stalíns hrinti af stokkunum á fjórða áratug síðustu aldar. Á ýmsu gekk í iðnvæðingunni en jafnframt færðist ofsóknaræði Stalíns í aukana. Og árið 1936 hófust nýjar "hreinsanir", grimmari en nokkru sinni fyrr.

Útvarpsfréttir.
Strákarnir okkar strita fyrir bronsinu, við leggjumst í sófann, borðum snakkið og öskrum þetta í gang!
Bubbi Morthens - Agnes Og Friðrik.
Eric Clapton - Let it grow
Led Zeppeling - Travelling Riverside Blues
Heimilistónar - Æskuást.
Valgeir Guðjónsson - Gleym mér ei
Manu Chao - La Vacaloca
Harry Styles - Aperture.
Jet Black Joe - Lazy old sun.
Change Hljómsveit - Lazy London lady.
Small Faces - Lazy sunday.
Spilverk þjóðanna - Lazy Daisy.
Johnny Cash - One
Marcia Griffiths - Dreamland
The Graham Bond - Strut around
Hjálmar - Upp í sveit.
GUS GUS - Starlovers.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Doddi hitaði upp fyrir leikinn um bronsið á EM í handbolta í Danmörku.
Glæsileg upphitun beint úr EM Stofu RUV.
Við heyrðum brot úr viðtali við fótboltamanninn Viktor Bjarka Daðason sem varð yngsti leikmaðurinn til þess að skora mark ú Evrópukeppni á Nývangi á dögunum.
Einar Árni Jóhannsson var á línunni og talaði um bikarvikuna sem framundan er í körfuboltanum.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Tómas R og GDRN - Pínu sein
Daniela Andrade - i see red
Sylvia Striplin - You can´t turn me away
Birta Dís - Fljúgðu burt
Mitchum Yacoub - Hurtin´
The Shacks - Trip to Japan
Bob Dylan - Jokerman
Rubin Pollock - Walk it off
Connan Mockasin - B´nD
Cola Boy - Babylon
Ari Árelíus - Hulin Hönd
Drugdealer - The News
Broadcast - Illumination
Weekendson - The Blame
Joanna - If you don´t want me to
Cub - Everything´s Geometry
Melanie Charles - Petty
Thundercat - I did this to myself
Gorillaz & Idles - The god of lying
Kig & Husk - Louisiana
79.5 - Facing East
Grace Jones - Pull up to the bumper
Gabriels - Love and hate in a different time
Hjálmar - Upp í sveit
Lykke Li - Possibility
Karate Boogaloo - Tremendous Fantastic
Kaeto - Little me
Króli - Kveðast á
Ghetto Youth Progress - Mon esprit part en couilles
L´Impèratrice - Lá-Haut
Flavien Berger - Brutalisme
Arlo Parks - Bluish
Sebastian Tellier - Amnesia
Robyn - Sexistential
Inland Shrines - Chronk
Obongjayar - Not in Surrender ( The Blessed Madonna remix)
Fm Belfast - Follow me
Francois & The Atlas Mountains - L’homme à la rivière
Demus, Chaka & Pliers - Murder she wrote
Harry Belafonte - Day-O The Banana boat song
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Í þessum þætti ræðum við við meðlimi Space Völvö og fyrstu plötu sveitarinnar, Fossil Fuel. Bandið varð til úr kaffihléi, vináttu og þörf fyrir að spila saman. Útkoman er hrátt, þykkt og óþvingað rokk.