Morgunútvarpið

Of há gjöld,bröns,prjónarar auglýsa Ísland og fyrir hvern erum við að pósta

Umræðan er einhvern veginn þannig að allir eiga að vera að fjárfesta en gjöldin sem því fylgja eru ekki mikið í umræðunni. Þrátt fyrir aukna sjálfvirknivæðingu í fjármálageiranum eru gjöld sem verðbréfasjóðir rukka á Íslandi enn þá hærri en gengur og gerist og rukka þeir í kringum tvö prósent að meðaltali. Spesía er ný fjárfestingaþjónusta sem ætlar að bjóða bönkunum birginn og lækka þessi gjöld og forstjórinn Georg Lúðvíksson kemur og segir okkur frá því.

Matgæðingurinn og sælkerinn Guðný Ljósbrá kemur til okkar með nokkur frábær ráð fyrir helgarbrönsinn, sem er miklu meira en bara egg, beikon og pönnukökur.

Íslenskir prjónarar eru nú boðnir fram til að leysa fólk af á fjarfundum um allan heim. Prjónarnir sitja fundi og prjóna úr íslenskri ull eitt orð sem endurspeglar inntak fundarins og koma þar með í stað gervigreindarþjarka, sem fólk fær til að sitja fundi í sinn stað. Um er að ræða nýja herferð Íslandsstofu sem á að hvetja fólk til að hætta að hanga á fundum og gera eitthvað betra við tímann sinn, eins og að heimsækja Ísland. Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu, segir okkur betur frá þessu ásamt prjónararanum Írisi Ösp Heiðrúnardóttur á Ísafirði.

Sara Margret Dougherty ritaði grein á Vísi á dögunum þar sem hún velti fyrir sér hvers vegna foreldrar birti myndir og frásagnir af börnunum sínum á samélagsmiðlum og hvaða áhrif það hefur á þau. Hvenær þarf samþykki frá barninu eða þarf þess aldrei? Hvar drögum við línuna? Við heyrum í Söru.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,