Morgunútvarpið

Giggó hagkerfið,kjörsókn,veturinn í Borgarleikhúsinu og Dýrabók- lausn fyrir gæludýraeigendur

Þúsundir svokallaðir giggarar hafa skráð sig til leiks í Giggó-appinu þar sem þeir bjóða upp á fjölbreytta þjónustu, allt frá pípulögnum upp prófarkalestur og allt þar á milli. Sífellt algengara er fólk festi sig ekki niður á einum vinnustað heldur bjóði upp á þjónustu sína á eigin vegum en umrætt app tengir þetta fólk við þau sem óska eftir þjónustunni. Þá útilokar kerfið fúskara með umsagnarkerfi en þau sem neikvæðar umsagnir heltast fljótt úr lestinni. Anna Katrín Halldórsdóttir frá Giggó kom til okkar.

Í appinu Dýrabók geta gæludýraeigendur sótt miðlæga sjúkraskrá dýranna sinna, skoðað bólusetningar, lyfjagjafir, þyngd og aðrar heilsufarsupplýsingar. Upplýsingagjöf um heilsufar dýra hefur hingað til verið brotakennd og þetta app á leysa úr því, gæludýraeigendum til mikillar gleði. Gunnar Kolbeinsson og Viktor Thulin Margeirsson komu og sögðu frá þessu.

Lokaspretturinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn er hafinn en þegar hafa þúsundir kosið utan kjörfundar. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á Höfuðborgarsvæðinu, var á línunni og gaf okkur nýjustu tölur um kjörsókn og svo opnuðum við fyrir símann og könnuðum hug kjósenda.

Í síðustu viku tókum við stöðuna á Þjóðleikhúsinu í upphafi nýs leikárs og í dag tökum við stöðuna á Borgarleikhúsinu. Egill Heiðar Pálsson leikhússtjóri Borgarleikhússins kom til okkar.

Birt

25. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,