Morgunútvarpið

Harmsaga einhverfs ungs fólks, Dóttir Skin, Dead Air og konur í tæknigeiranum

Tæknigeirinn er ansi karllægur en á fimmtudaginn kemur ætla Defend Iceland og Innnes beina sjónum sínum hlutverki kvenna í tæknigeiranum á morgunfundi. Nálgun fundarins er einföld: Samtal um hætta efast, því það þarf ekki kunna allt til stíga inn í tæknigeirann, bara þora og læra á leiðinni. Á fundinum deila konur í lykilhlutverkum reynslu sinni, hvernig þær fóru hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir inn í heim tækninnar og hvers vegna tæknigeirinn þarf á fólki af öllum toga halda. Hörn Valdimarsdóttir, rekstrarstjóri og meðstofnandi Defend Iceland Berglind Grímsdóttir, upplýsingaöryggisstjóri hjá Innes, litu við hjá okkur í Morgunútvarpinu.

Í Kveik í gærkvöldi var fjallað um einhverf ungmenni sem lenda á veggjum í geðheilbrigðiskerfinu. Fullorðnum einhverfum er gjarnan synjað um geðheilbrigðisþjónustu og takmörkuð sérhæfð þjónusta stendur hópnum til boða. Þetta er staðan þrátt fyrir þörf einhverfra fyrir geðheilbrigðisþjónustu töluverð. Bryndís Bjarnadóttir og Ólafur Sigurðsson komu til okkar en þau eru foreldrar einhverfra einstaklinga sem bera kerfinu ekki fagra sögu.

Helga Sigrún Hermannsdóttir er einn eigenda Dóttir Skin, sem er íslenskt húðvörumerki. Helga Sigrún lærði efnaverkfræði í Danmörku og hefur ávallt haft mikinn áhuga á innihaldsefnum í snyrtivörum. Eftir hún upplifði slæman sólbruna og greindist með frumubreytingar fór hún sjálf rannsaka slíkar vörur og stofnaði í kjölfarið eigið húðvörumerki. Helga Sigrún sagði sögu sína í Morgunútvarpinu.

Álfrún Gísladóttir skrifaði leikverk sitt: Dead Air eftir hafa lesið um fyrirtæki sem endurvekja látna einstaklinga í gegnum gervigreind. Málefnið stendur Álfrúnu nærri en hún missti föður sinn fyrir tæpum þremur árum og skrifar verkið út frá þeirri sáru reynslu. Anna María Tómasdóttir leikstýrir verkinu sem er sýnt í Tjarnarbíói í kvöld og annað kvöld og þær stöllur komu til okkar.

Birt

4. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,