Morgunútvarpið

Heilbrigðisráðherra,Slapp,karlkyns brotaþolar og skyggnilýsing í beinni

Slapp er nýr íslenskur samfélagsmiðill sem á takast á við gervimenni og auglýsingaflóð sem einkenna aðra miðla. Slapp er búinn til af æskuvinum sem fannst samfélagsmiðlar sem fólk notar í dag sífellt minna spennandi. Kristján Leó Guðmundsson, einn af stofnendum Slapps, kom til okkar í Morgunútvarpið.

Heilbrigðisráðherra vill skera upp herör gegn offitu og meðhöndla hana eins og langvinnan sjúkdóm. Skoða á óhollustuskatt, endurskoða greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjum og fjölga meðferðarúrræðum. Alma Möller kom til okkar og ræddi tillögurnar og heilsu þjóðarinnar.

Umfjöllun Kveiks um menn sem voru sendir í fóstur á Bakkakot sem ungir drengir og segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi þar hélt áfram í gærkvöldi. Það er ekki algengt karlmenn tjái sig um kynferðisofbeldi en til ræða það við okkur kom Hjálmar Gunnar Sigmarsson hjá Stígamótum. Samtökin bjóða upp á ráðgjöf fyrir karlkyns brotaþola og það er algengt fleiri hafi samband þegar svona mál koma upp.

Breski miðillinn Darren Orlowski kemur til landsins og verður með skyggnilýsingu í Gamla bíói 19. Febrúar næstkomandi. Orlowski er virtur á sínu sviði og hlaut styrk frá Arthur Findley College, sem er afar virtur á sínu sviði. Rósa Björk Hauksdóttir stendur fyrir komu miðilsins til landsins og hún kíkti til okkar, ásamt Darren Orlowski, og í heimsókninni heimsótti gömul kona Þráin handan.

Birt

18. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,