Morgunútvarpið

Réttarhöld yfir Marius Borg,myndin Melania og hvað þýðir mikil verðhækkun á gulli ?

Réttarhöld yfir Marius Borg Hoiby syni Mette Marit eiginkonu Hákons krónprins í Noregi hefjast á morgun 3.febrúar. Réttað verður yfir honum vegna ákæru fyrir ofbeldis- og kynferðisbrot. Fyrir nokkrum dögum kom út bókin Kókaín í konungsríki hjá Storytel á Íslandi í þýðingu Atla Steins Guðmundssonar blaðamanns. Í bjókinni afhjúpa tveir af reyndustu rannsóknarblaðamönnum Noregs hvernig sonur norsku krónprinsessunnar flæktist inn í heim eiturlyfja og ofbeldis. Við settum okkur í samband við Atla Stein og ræddum hinn umdeilda Marius Borg.

Okkar maður Guðmundur Jóhannsson mætti með allt það nýjasta úr heimi tækninnar á mánudegi.

Melania kvikmynd þar sem fylgst er með Melaniu Trump forsetafrú Bandaríkjanna síðustu dagana fyrir embættistöku forsetans þann 20.janúar í fyrra var frumsýnd í kvikmyndahúsum um helgina. Myndin þykir umdeild og í síðustu viku sögðum við frá því aðeins væri búið kaupa einn miða í forsölu í Bretlandi. En hvernig mynd er þetta og hvernig rúllaði fyrsta sýningarhelgin af stað. Við ræddum málið við Ásgrím Sverrisson.

Verð á gulli hefur hækkað um 150% undanfarin tvö ár og er í fyrsta sinn komið yfir 5.000 dollara fyrir únsuna. Sagan segir ríki heim, fjárfestinga og lífeyrissjóðir séu selja bandaríska ríkisskuldabréf og kaupa gull í staðinn. Það er mikil spenna í viðskiptum heims sem er upprunnin í Bandaríkjunum og hefur vakið óróa með fjárfestum. Fall Bandaríkjadollars spilar líka inn í. Hann hefur fengið annað högg þar sem áhyggjur fara vaxandi af áhrifum tolla, háum ríkisútgjöldum og verðbólgu á bandarískan efnahag. Það kallar á fjárfestar endurskoði stöðu sína í Bandaríkjunum. Guðlaugur Steinarr Gíslason fjárfestingastjóri og meðstofnandi hjá Visku sjóðum kom til okkar og við spurðum hann hvort skollið væri á efnahagsstríð.

EIns og venja er á mánudögum þá förum við yfir allt það helsta sem gerðist í sportinu um helgina og það er eitthvað sem segir okkur eitt aðal umfjöllunarefnið verði EM í handbolta en því lauk í gær, fyrir okkur með svekkjandi tapi fyrir Króötum sem nældu sér í bronsverðlaun og niðurstaðan því fjórða sætið á mótinu. Almarr Ormarsson kom til okkar.

Frumflutt

2. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,