Elísabet Jökulsdóttir, Friðjón Friðjónsson og Tómas Hallgrímsson
Forsetakosningar, embætti forseta og hugsjón frambjóðenda eru til umræðu í þætti dagsins. Elísabet Kristín Jökulsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og kosningaspegúlant, og Tómas Logi Hallgrímsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, björgunarsveitarmaður og rafvirki, eru gestir Sunnu Valgerðardóttur. Tæknimaður þáttarins er Jón Þór Helgason.
Frumflutt
30. mars 2024
Aðgengilegt til
31. mars 2025
Vikulokin
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.