Morgunútvarpið

Rúrik dansar sem aldrei fyrr, áfram gustar um Ingvar, hótelturninn og áhyggjur af drápsvélmennum

Gustað hefur um Ingvar Þóroddsson sem yfirgaf Viðreisn í vikunni og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, lýstir yfir vonbrigðum sínum með ákvörðun Ingvars í Morgunútvarpinu í gær og líkti kveðjustundinni við að hann hefði skellt á eftir sér hurðinni. Sjálfur sagðist Ingvar ekki hafa fengið tækifæri til að greina fólki frá vistaskiptum sínum í eigin persónu. Ingvar kemur til okkar.

Rúrik Gíslason ferðast nú um og stígur trylltan dans á Let's Dance túrnum, sem er einskonar sviðsútgáfa af samnefndum þýskum raunveruleikaþáttum sem okkar maður sigraði árið 2021. Tugir þúsunda sækja sýningarnar og við heyrum í Rúrik áður en hann snýr aftur til Íslands og stígur á svið með Iceguys í seinasta sinn þann 12. Desember næstkomandi.

Sex félög tengd hótelturninum við Skúlagötu hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar í byrjun nóvember. RÚV greindi fyrst frá því að framkvæmdirnar við hótelturninn, þar sem til stóð að opna Radisson Red hótel á 17 hæðum, hefðu verið stöðvaðar þar sem lokað hafði verið á fjárveitingar til verksins. Fréttamaðurinn Magnús Geir Eyjólfsson færir okkur nýjustu fréttir af turninum.

Ríki heimsins freista þess nú að koma sér saman um reglur um sjálfvirk vopnakerfi, sem sumir vilja einfaldlega kalla drápsvélmenni. Áhyggjur af aukinni notkun gervigreindar í hernaði hafa aukist en á dögunum fjölluðum við um heimildarmyndina NAZA en hún olli fjaðrafoki þegar hún afhjúpaði hvernig Ísraelsher beitir gervigreind til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza. Kristinn R. Þórisson er prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og stjórnandi Vitvélastofnunar Íslands kemur til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,