
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Eins og kom fram í Morgunútvarpinu í gær þá hefur tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgað mikið milli ára en tæplega helmingur brotaþola eru börn. Fulltrúi í kynferðisbrotadeild lögreglunnar sagði hættulegt að láta mjög ung börn hafa snjallsíma og sambærileg tæki. Með því séu níðingar komnir inn í herbergi barna. En hvað eiga foreldrar til bragðs að taka? Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Netöryggismiðstöð Íslands, fræðir okkur um það.
Ölgerðin gerir samninga við bari og veitingastaði sem hindra aðgengi annarra framleiðenda að markaðnum. Þetta kom fram í Kveik í gærkvöldi. Samkeppniseftirlitið framkvæmdi á föstudag húsleit hjá Ölgerðinni og hefur Kveikur undanfarna mánuði skoðað viðskiptahætti fyrirtækisins. Sigurður Pétur Snorrason, frá RVK bruggfélagi, kemur til okkar og ræðir um það sem kom fram í þættinum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir of mörg dæmi séu um vonda meðferð á au-pair stúlkum og það hafi kallað á breytingar. Í frumvarpi um breytingar á útlendingalögum er lagt til að sérstakt dvalarleyfi vegna vistráðningar, sem við köllum yfirleitt au pair, fyrir fólk utan EES-svæðisins verði lagt niður. Á árunum 2017–2024 voru veitt yfir 700 dvalarleyfi vegna vistráðninga og um 78% þeirra fóru til ríkisborgara Filippseyja. Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, lýsir yfir mikilli óánægju með þá leið sem dómsmálaráðherra hyggst fara í viðtali við mbl.is og segir það eina rétta í stöðunni að efla eftirlitið. Þorbjörg Sigríður kemur til okkar.
Við kynntumst lögreglukonunni Elmu í fyrstu bók Evu Bjargar Ægisdóttur, Marrinu í stiganum. Við héldum svo áfram að fylgjast með Elmu í næstu bókum Evu Bjargar sem hafa verið gefnar út um allan heim. Nú er níunda bók Evu væntanleg en líka sjónvarpsþættirnir Elma, sem eru byggðir á Marrinu í stiganum og verða frumsýndir í Sjónvarpi Símans á morgun. Unnur Birna Bachmann fer með hlutverk Elmu í þáttunum en Eva Björg kemur til okkar og segir okkur frá þessu.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.