Morgunútvarpið

Pétur Marteins,ástandið í Laugardalslaug,íslenskan,lífeyrisréttindi,óhugnaður á netinu og 13 þriggja stiga

Borgarfulltrúar Samfylkingar lögðu í vikunni fram tillögu um að þegar á að selja mikilvæg innviðafyrirtæki þurfi aukinn meirihluta. Þetta kemur í kjölfarið á fréttum um væntanlega sölu á bæði Carbfix og Ljósleiðaranum. Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, kemur til okkar.

Vísir greindi frá því á dögunum að nafn ungrar stúlku í Hafnarfirði hafi verið notað til að búa til gerviaðgang á samfélagsmiðlum og hóta fólki. Ekki er ljóst hvort að manneskja eða gervigreind hafi verið þar að baki en móðir stúlkunnar frétti af málinu þegar forvarnarráðgjafi hafði samband. Karólína Helga Símonardóttir, móðir stúlkunnar, bæjarfulltrúi og varaþingmaður, kemur til okkar.

Fastagestur segir ástandið á Laugardalslaug óboðlegt. Ásmundur Helgason segir krakkalaugina ískalda og drulluskítuga, sturtur bilaðar og að skápar virki ekki. Þá segir hann hillur sem voru við sturturnar horfnar, ekkert vatn í rennibrautum og hliðið inn í laugina bilað. Ásmundur veltir fyrir sér hvort markmiðið sé að fæla gesti frá. Við heyrum í honum.

Fjöldi fólks með annað móðurmál en íslensku starfar á íslenskum vinnumarkaði og vinnustaðir gegna því lykilhlutverki í því að gefa fólki tækifæri til að læra málið og nota það. Bara tala þróaði lausn sína í íslenskukennslu fyrst út frá þörfum atvinnulífsins en lausnina má einnig nýta til inngildandi íslenskukennslu víðar í samfélaginu. Staða íslenskunnar meðal fólks með annað móðurmál verður rædd á opnum viðburði á vegum Bara tala, Brims og Gefum íslensku séns í Iðnó í dag klukkan 16.30. Jón Gunnar Þórðarson frá Bara tala og Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri Brims, koma til okkar.

Ísland vann stórsigur gegn Aserbaídsjan í forkeppni EM kvenna í körfubolta 2029, 129-41. Liðið sló stigamet sem var 120 stig gegn Gíbraltar frá 2014. Thelma Dís Ágústsdóttir fór á kostum og skoraði 41 stig setti niður 13 þrista, sem er nýtt met. Almar Ormarsson kemur í körfuboltaspjall í íþróttamola vikunnar.

Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, vill sjá norrænt samstarf þar sem einstaklingar geti fengið yfirsýn yfir lífeyrisréttindi sín, óháð því hvar á Norðurlöndum þeir hafa starfað, og fengið skýrar upplýsingar um hvernig þeir geta fengið þau greidd. Á nýafstöðnu Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki var kallað eftir því að ríkisstjórnir Norðurlandanna taki höndum saman um að einfalda kerfin, bæta upplýsingagjöf og tryggja að fólk geti auðveldlega nálgast þau lífeyrisréttindi sem það hefur áunnið sér. Við heyrum í Bryndísi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,