• 00:10:47Ágúst frumflytur jólalag
  • 00:26:48Meirihlutinn um innviðasölu
  • 00:50:53Grand Theft Auto 6 stenst væntingar
  • 01:08:00Fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Ágúst Brynjarsson,Brynjar Níelsson um Ljósleiðarann,GTA 6,Sandra Barilli og Snorri Helga

Tónlistarmaðurinn Ágúst Brynjarsson hefur átt frábært ár. Hann er búinn að vera áberandi í tónlistarlífi þjóðarinnar sem náði hápunkti þegar hann tók að sér brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Nú er hann mættur með nýtt jólalag, sem hann ætlar að frumflytja hjá okkur og keyra þar með í gang jólalögin á Rás 2, örlítið fyrr en vanalega.

Borgarfulltrúar Samfylkingar lögðu í vikunni fram tillögu um að þegar á að selja mikilvæg innviðafyrirtæki þurfi aukinn meirihluta. Pétur Marteinsson ræddi málið í Morgunútvarpinu í gær en málið kemur upp í kjölfarið á fréttum um væntanlega sölu á bæði Carbfix og Ljósleiðaranum. Óvíst er hvar málið endar en Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kemur til okkar og fer yfir málið frá sjónarhóli meirihlutans.

Tölvuleikurinn GTA 6er kominn út eftir 13 ára bið. Svo virðist sem leikurinn standi undir væntingum og gagnrýnendur segja hann sannkallað meistaraverk. Fréttamennirnir Sebastian Óli Guðmundsson og Guðmundur Atli Hlynsson koma til okkar í spjall um þennan sögulega tölvuleik.

Við förum yfir fréttir vikunnar með gleðigjafanum Söndru Barilli og Snorra Helgasyni, tónlistarmanni og matgæðingi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,