• 00:10:33Kvennaboltinn á undir högg að sækja
  • 00:31:12Kartöflur!
  • 00:51:47Einmanaleikafaraldurinn
  • 01:12:14Í ljósi sögunnar 10 ára

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Kvennaboltinn,kartöflur,einmannaleikafaraldurinn og Í ljósi sögunnar í tíu ár

Í síðustu viku fengum við fréttir af því að stúlkur í 3. flokki í fótbolta fengu afhentar medalíur sem voru ætlaðar strákum. Þjálfari sem hefur þjálfarð 13 til 16 ára stúlkur síðustu ár vill meina að fótbolti kvenna eigi undir högg að sækja á Íslandi og að það nái alveg upp í efstu deild. Þjálfarinn Magnús Harðarson kemur til okkar.

Okkar allra besta Guðný Ljósbrá, matgæðingur og sælkeri, mætir til okkar með girnilegasta innslag dagsins. Í þetta skipti ætlar hún að ræða um uppáhald okkar allra: Kartöflur! Og gefa okkur hugmyndir að allra bestu hliðarréttunum þar sem kartöflur eru í aðalhlutverki.

Er einmanaleiki orðinn faraldur? Einmanaleiki hefur áhrif á fólk á öllum aldri og er sífellt meira viðurkenndur sem mikilvægt lýðheilsumál. Í tilefni af Viku einmanaleikans býður Rauði krossinn á Íslandi til morgunmálþings á föstudag þar sem fjallað verður um áhrif einmanaleika og leiðir til að efla tengsl, þátttöku og samfélag. Elfa Dögg S. Leifsdóttir sálfræðingur og Halldór Sigurður Guðmundsson prófessor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands spjalla við okkur um einmanaleikann.

Útvarpsþátturinn Í ljósi sögunnar fagnaði 10 ára afmæli á dögunum. Þátturinn nýtur ótrúlegra vinsælda, bæði í útvarp og ekki síður í hlaðvarpi. Við fáum Veru Illugadóttur til okkar í spjall um skrímslið sem hún skapaði.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,