• 00:12:54Ólögleg peptíð á Íslandi
  • 00:31:11Opið bréf til Elliða
  • 00:51:49Hafið er svart
  • 01:16:55Þingkosningar í Ísrael

Morgunútvarpið

Ólögleg peptíð,Nichole Leigh Mosty um íslenskukennslu,þingkosningarnar í Ísrael og Baldvin Z leitar að togara

Við höldum áfram að fjalla um ólögleg peptíð í Morgunútvarpinu en yfirvöld hafa enga hugmynd um hversu víðtæk notkunin er í samfélaginu. Málið var rætt á Alþingi í síðustu viku en í vor var lagt hald á 5.000 glös af ólöglegum peptíðum sem tengdust meðal annars þyngdarstjórnun, húð, hár og vöðvauppbyggingu. Í öllum tilfellum komu peptíðin frá Kína og voru send hingað til lands með póst- og hraðsendingum. Var þetta í fyrsta skipti sem tollgæslan hér á landi leggur hald á slík peptíð. Æ oftar heyrum við af því að fólk sé að sprauta þessum efnum undir húð en hvernig horfir staðan við Lyfjastofnun? Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, kemur til okkar.

Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona, birti á dögunum opið bréf til Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, sem hefur undanfarna daga viðrað áhyggjur sínar af þróun innflytjendamála á Íslandi. Nichole spyr Elliða meðal annars hvort Elliði hafi fyrir hönd sveitarfélagsins sem hann stýrir tekið eitthvert þeirra skrefa sem lögð eru til í móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna og hvort hann styðji við íslenskunám erlendra íbúa Ölfuss í nærsamfélaginu. Nichole kemur til okkar. Við buðum Elliða að taka þátt í umræðunni með okkur en hann sá sér því miður ekki fært að mæta.

Leikstjórinn Baldvin Z leitar nú að togara til að nota í spennumyndinni Hafið er svart en tökur hefjast í mars. Myndin gerist um borð í togara og með helstu hlutverk fara kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, Baltasar Kormákur, sem leikur skipstjórann Andra og Ólafur Darri, sem leikur sjómanninn Hödda. Baldvin Z kemur til okkar og lýsir draumatogaranum í verkefnið.

Þingkosningar verða haldnar í Ísrael í dag. Ljóst er að þær verða prófsteinn fyrir forsætisráðherrann Benjamin Netanjahú og hægristjórn hans eftir nærri þriggja ára stríðsrekstur á Gasa, í Íran og í Líbanon. Októberráðið, hópur sem stofnaður var af fjölskyldum fórnarlamba og gísla sem Hamas-liðar tóku í árásinni 7. október 2023, hefur staðið fyrir mótmælum en hópurinn krefst þess að valdamenn verði dregnir til ábyrgðar fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir árásina. Þá hafa brottfluttir Ísraelar snúið heim til að kjósa en tugir þúsunda hafa flutt frá landinu að undanförnu vegna óánægju með stjórnvöld. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður fræðir okkur um stöðu mála í Ísrael.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,