
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fjallað verður um viðbúnað Íslands við hamförum og mikilvægi þess að tryggja heilsu og öryggi landsmanna þegar vá steðjar að á fundi í Veröld - húsi Vigdísar í hádeginu í dag. Þar velti Ólafur Ögmundarson, prófessor og deildarforseti matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands, fyrir sér fæðuörygginu á Íslandi þegar neyðin knýr dyra og hann ætlar að koma til okkar.
Á vettvangi er hlaðvarp þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson færir almenningi upplýsingar, sögur og innsýn í aðstæður og starfsumhverfi sem almenningur hefur sjaldan aðgang að. Jóhannes hefur í eitt og hálft verið við upptökur með lögregunni á höfuðborgarsvæðinu og fjallar um það í þáttaröðinni, sem fór í loftið í vikunni. Jóhannes kemur til okkar.
Þrír fórust þegar línuskipið Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudagskvöld. Fjórtán var bjargað á lífi en björgunaraðgerðir fóru fram við afar krefjandi aðstæður. Valmundur Valmundsson, sjómaður og formaður Sjómannasambands Íslands, segir slysið mikið bakslag í öryggismálum á sjó og að krafan um að sjómenn snúi aftur heim eigi að vera ófrávíkjanleg. Valmundur kemur til okkar.
Við förum yfir fréttirnar og þau ætla að vera með okkur; Tinna Björt Jónsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.