
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum utan EES sem búa og starfa hér á landi með tímabundið dvalarleyfi leggjast ekki vel í stjórnendur Landspítala. Þar er fullyrt að skólagjöldin muni í reynd girða fyrir að stórir hópar fólks sem gegna samfélagslega mikilvægum störfum á íslenskum vinnumarkaði geti sótt sér kennslu í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands, til dæmis læknar og hjúkrunarfræðingar frá löndum utan EES. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, kemur til okkar en hann flytur erindi á málþingi um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli í Eddu – húsi íslenskunnar klukkan 10.
Fyrsta skóflustungan að nýrri Þjóðarhöll fyrir íþróttir var tekin í dag í Laugardal. Fyrstu hugmyndir um Þjóðarhöll voru lagðar fram 1994 og nú 32 árum síðar var fyrsta handtakið. Áætluð verklok eru í janúar 2030. Það er alveg að koma helgi og Helgi Már Halldórsson hönnunarstjóri og Helgi Geirharðsson verkefnastjóri koma til okkar.
Við hittum boxarann Eriku Nótt Einarsdóttur hér í Morgunútvarpinu áður en hún barðist í fyrsta skipti sem atvinnumaður. Hún hélt svo til Bretlands í október þar sem hún mætti Cörlu Jade og tapaði naumlega. Erika lagði allt í sölurnar og hefur kallað úrslit bardagans rán en hefur að engu að síður gert sex bardaga samning og undirbýr næstu skref. Erika Nótt kemur til okkar.
Dagur brauðtertunnar er í dag og við fögnum honum að sjálfsögðu í Morgunútvarpinu. Fyrstu uppskriftirnar að brauðtertum birtust í íslenskum fjölmiðlum árið 1953 og eru þær enn þann dag í dag nauðsynlegur hluti af veisluborðinu þegar þjóðin gerir sér glaðan dag. Friðrik V Hraunfjörð matreiðslumeistari verður á línunni í tilefni dagsins.
Við förum yfir fréttir vikunnar með tveimur ofurkonum: Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir koma til okkar.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.