
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fasteignafélagið Þórkatla hefur kynnt endurkaupaáætlun sem gerir Grindvíkingum kleift að kaupa til baka fasteignir sem ríkið keypti eftir eldgosin í nágrenni bæjarins. Grindvíkingar sem mæta tilteknum skilyrðum geta frá byrjun næsta árs keypt aftur, tekið frá eða leigt eignir af Þórkötlu í Grindavík. Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, verður á línunni.
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hófst í gær en til stendur að sækja um 105 milljónir evra, eða tæpa 15 milljarða króna, í nýtt hlutafé. Bláa lónið vill staðsetja Ísland sem einn helsta upplifunar- og vellíðunaráfangastað heimsins og stendur í mikilli uppbyggingu víða um land. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, kemur til okkar.
Fólk er algjörlega tryllt út í Kim Kardashian og fatamerkið hennar Skims þessa dagana. Skims hefur neyðst til að bjóða fólki sem keypti rándýrt jóladagatalið frá þeim endurgreiðslu vegna þess að innvolsið þykir alls ekki peninganna virði. Dagatalið kostar um 18 þúsund íslenskar krónur en við veltum fyrir okkur af hverju fólk er búið að opna gluggana? Eva Ruza verður á línunni og fer yfir málið.
Ísland þarf að gera mun betur til að minnka losun, auka bindingu og grípa til markvissrar aðlögunar. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í fyrstu stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs en þar er staða Íslands skoðuð í samhengi loftslagsmála á veraldarvísu. Ljóst er að horfur í loftslagsmálum eru grafalvarlegar. Áhrif loftslagsbreytinga eru þegar orðin mikil og skaði af völdum þeirra mun ágerast á komandi árum. Guðmundur Steingrímsson, framkvæmdastjóri Loftslagsráðs, kemur til okkar.
Verðbólga, uppsagnir og jólin á næsta leyti. Hvernig eiga hjónaböndin að halda í gegnum þennan ólgusjó? Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, kemur til okkar og gefur okkur góð ráð.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.