
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
First Love er nýr íslenskur hljóðgervill sem er á leiðinni í dreifingu í Evrópu og Norður Ameríku. En hvernig býr maður til hljóðgervil? Uppfinningamaðurinn Kári Halldórsson kemur til okkar og fer yfir þróunarferlið ásamt því að gefa okkur tóndæmi.
Ólafur Þórðarson er margfaldur Íslandsmeistari í knattspyrnu og gerði það gott sem leikmaður ÍA, atvinnumaður og landsliðsmaður. Harðjaxlinn ljúfi er ævisagan hans eftir Hjört Hjartarson en þar segir hann frá sigrunum, vonbrigðunum, fórnunum og því sem hefði getað orðið. Ólafur kemur til okkar ásamt Hirti.
Kvikmynd um ævintýri strákasveitarinnar Iceguys verður frumsýnd í dag. Iceguys hafa notið ævintýralegra vinsælda frá því að hljómsveitin kom fram á sjónarsviðið fyrir þremur árum, enda skipuð nokkrum af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson kemur til okkar ásamt meðlimum Iceguys.
Við förum yfir fréttir vikunnar með athafnamanninum Valgeiri Magnússyni og Eyrúnu Magnúsdóttur, ritstjóra Gímaldsins, sem er eins árs um þessar mundir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.