
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Getur dáleiðsla fært okkur meiri ró, sjálfstraust og jafnvel vellíðan? Svo segir Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunarfræðingur og dáleiðslukennar, en hún segir að dáleiðsla sé náttúrulegt ástand hugans þar sem við slökum á, beinum athyglinni innávið og gefum okkur tækifæri til að vinna með hugsanir, tilfinningar og líðan á dýpri og mildari hátt. Hljómar vel en á morgun verður Ingibjörg með fræðslu um dáleiðslu á Borgarbókasafninu Sólheimum. Hún kom í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu.
Ef samningar nást ekki milli Icelandair og flugvirkja skellur á allsherjarverkfall á miðnætti. Allar flugferðir félagsins frá Íslandi falla að óbreyttu niður um leið og verkfall flugvirkja hefst en undanfarna daga hefur flugfarþegum verið boðið að færa flugferðir sínar. En hver er réttur fólks sem á bókað flug ef það kemur til verkfalls. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, var á línunni.
Sérfræðingar frá ólíkum sviðum tengdum umferðaröryggi deila þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur á Umferðarþingi í dag. Raddir yngri vegfarenda fá að heyrast á þinginu en forvitnilegt verður að heyra hvernig þau vilja gera umferðina öruggari. Bjarklind Björk Gunnarsdóttir og Margrét Birna Björnsdóttir frá Samgöngustofu komu til okkar í umferðarspjall.
Íslenska karlalandsliðið hefur leik í C-deild Þjóðadeildarinnar um næstu helgi. Liðið er í riðli með Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu og spilar fjóra leiki á aðeins ellefu dögum en sá fyrsti er á laugardaginn við Eistland á Laugardalsvelli. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari kíkti til okkar í kaffibolla.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.