Morgunútvarpið

Seðlabankastjóri,Bad Bunny,app sem kemur í veg fyrir hjónaskilnaði og borgin Akureyri

Sýnt hefur verið fram á ágreiningur vegna heimilisverkanna er ein helsta ástæða hjónaskilnaða. Appinu Heima er ætlað lækka þessa tölfræði en þar er á ferðinni verkfæri til þess auka samvinnu innan heimilisins, virkja krakka og unglinga og byggja langvarandi rútínur til þess halda öllum boltum á lofti innan heimilisins. Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, stofnendur Heima, komu í Morgunútvarpið og sögðu okkur frá appinu.

Varaþingmaðurinn Sindri S. Kristjánsson velti því upp á Alþingi í vikunni hvernig bær verður borg. Síðasta haust ályktaði Alþingi fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess efla Akureyri sem formlega svæðisborg. Sindri kom til okkar og benti á til þess stefnan verði veruleika þurfi aðgerðir.

Verðbólga hækkar hér á landi og hæstu stýrivextir í Evrópu lækka ekki. Stjórnvöld benda á olíufélögin og bílaumboðin í leit sökudólgum. Seðlabankinn bendir á stjórnvöld og gagnrýnir launahækkanir. Verkalýðsforystan býr sig undir kjaraviðræður. Á meðan klórar almenningur sér í hausnum og veltir fyrir sér afborgunum á húsnæðisláninu. Til ræða þetta allt saman mætti til okkar Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri.

Af hverju er forseti Bandaríkjanna skipta sér því hver kemur fram á hálfleik ofurskálarinnar? Tónlistarmaðurinn Bad Bunny sópaði Grammy-verðlaunum á dögunum og verður í sviðsljósinu þegar Seattle Seahawks og New England Patriots mætast í ofurskálinn á sunnudag. Donald Trump er ekki ánægður með Bad Bunny komi þar fram og Morgunútvarpið fékk til sín útvarpsmanninn Kristján Guðjónsson úr Lestinni á Rás 1 til segja okkur allt um tónlistarmanninn og af hverju hann er umdeildur.

Birt

5. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,