Jóladagatala-Cult, testósterón, Pan-arcticvision og fréttir vikunnar
Umræða í Morgunútvarpinu í gær um jóladagatöl og nostalgíuna sem þeim tengist vakti talsverða athygli hlustenda. Í kjölfarið hafði Bjartur Aðalbjörnsson samband sem segir RÚV ekki hafa staðið sig nógu vel í að miðla gömlum jóladagatölum á borð við Baðkari til Betlehem, Stjörnustrák, Hvar er Völundur?, Jól á leið til jarðar og Tveir á báti til yngri kynslóða. Hann hefur sjálfur reynt að halda heiðri þáttanna á lofti ítarlegum skrifum á Wikipedia og í hlaðvarpi. Morgunútvarpið sló á þráðinn til Vopnafjarðar og heyrði í Bjarti.
Hvað útskýrir fjarveru þessa klassíska sjónvarpsefnis í Spilara RÚV? Málið er snúið og Morgunútvarpið krafði Agnesi Wild, teymisstjóri barna- og ungmennaþjónustu RÚV, svara.
Þið þekkið auðvitað öll Eurovision, nú síðast fórum við yfir hið rússneska Intervision en hvað með Pan-Arcticvision? Það verður haldið um helgina. Valur Gunnarsson sagði okkur betur frá því.
Í umræðum á internetinu hefur borið á því að karlmenn kenni testósterónskorti um ýmsa líkamlega kvilla sem mætti mögulega útskýra með öðrum hætti. Svo virðist sem æ fleiri leiti til lækna í von um aukið testósterón en svo eru auðvitað einhverjir sem kaupa hormónið á svörtum markaði með hættum sem því fylgja. Hvað útskýrir þessa skyndilegu testósterónþörf íslenskra karla? Þurfa þeir á þessu að halda eða er þetta allt saman einn stór misskilningur? Morgunútvarpið ræddi við Guðna Arnar Guðnason innkirtlalækni.
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir og Ebba Sigurðardóttir kitla hláturtaugar áhorfenda í Þjóðleikhúskjallaranum með Improv Ísland um þessar mundir. Þær mættu í Morgunútvarpið og fóru með okkur yfir fréttir vikunnar.
Frumflutt
28. nóv. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.