31. okt. -Mannskaða hálka, hrekkjavöku frestað, Andrés ekki Prins o.fl.
Sagt er á vef veðurstofunnar að búast megi við rigningu á Suðvesturlandi með hlýnandi veðri. Líklegt er að glerhálka myndist á þjöppuðum snjónum á vegum og gangstéttum. Bráðamóttakan finnur alltaf fyrir færð sem þessari. Hjalti Már Björnsson yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum kemur til okkar.
Á þessum nótum ræðum við líka við Sigrúnu A. Þorsteinsdóttur, sérfræðing í forvörnum hjá VÍS. Hún ræðir einnig snjóhengjur, grýlukerti og annað sem húseigendur þurfa að hafa í huga.
Eftir því sem leið á gærdaginn fóru blikur að verða á lofti með Hrekkjavökuhöld og hvort hreinlega þyrfti að fresta hryllingnum vegna veðurs. Í mörgum hverfum hefur verið ákveðið að gera einmitt það, til dæmis í Breiðholti. Jóhanna Dýrunn hrekkjavökustjóri segir okkur betur frá.
Við höldum áfram umræðu um stöðuna á Norðuráli og Grundartanga, nú með Guðríði Eldey Arnardóttur, framkvæmdastjóra Samáls, en hún spurði í grein á Vísi hvort álverin á Íslandi séu útlensk.
Karl Bretakonungur ákvað í gær að svipta Andrés Bretaprins prinstitlinum vegna meintra kynferðisbrota hans. Andrés verður því héðan í frá þekktur í sínu heimalandi sem Andrés Mountbatten Windsor en ekki Andrés prins. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður fer yfir málið með okkur.
Til að rekja fréttir vikunnar með okkur mæta fréttamennirnir Freyr Gígja Gunnarsson og Elín Margrét Böðvarsdóttir í hljóðver.
Frumflutt
31. okt. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.