Morgunútvarpið

22. sept. -Bakgarðshlaupið, sjálfstæði Palestínu, Intervision o.fl..

Garpur I. Elísabetarson hefur fylgst með Bakgarðshlaupinu alla helgina og verður á línunni.

Bretar, Kanada og Ástralía hafa viðurkennt sjálfstæði Palestínu. Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir málið við okkur.

Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, ræðir vísindafréttir.

Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt og tónlistarsérfræðingur, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum Intervision söngvakeppnina sem fram fór um helgina, keppni sem Rússar endurvöktu til höfuðs Eurovision.

Við förum yfir íþróttir helgarinnar.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir úttekt fréttastofu RÚV á fimm málum ríkisstjórnarinnar sem gætu haft áhrif á þig.

Frumflutt

22. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,