
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Elín Ósk Óskarsdóttir heldur upp á 40 ára söngafmæli sitt með tónleikum í Salnum í Kópavogi 4.október nk. Elín Ósk hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga 11 ára gömul. Hún stundaði svo nám við Söngskólann í Reykjavík frá 1979-1984 og lauk þaðan einsöngvaraprófi. Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og henni við hlið var Jórunn Viðar tónskáld sem sá um undirleikin. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu frá 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro tenór og prófessor í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði. Elín Ósk fór yfir ferilinn með okkur og sagði til dæmis frá því þegar hún missti röddina og ekki fannst orsök þess fyrr en hún loksins fór til kvensjúkdómalæknis sem gat greint hvað var að hrjá hana.
Jónatan Garðarsson hélt svo áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að Björgvini Halldórssyni, Bo. Björgvin var auðvitað magnaður söngvari, en líka góður lagahöfundur og stjórnaði upptökum á fjölda hljómplatna fyrir aðra. Hann varð gríðarleg stjarna mjög ungur og hélt áfram allan ferilinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Jónatani þegar kemur að Björgvini, frekar en fyrri daginn.
Tónlist í þættinum:
Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (bandarískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson)
Vissi d'arte / Elín Ósk Óskarsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Giacomo Puccini, texti Luigi Illica og Giuseppe Giacosa)
Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (Bob Calili, Michael Brown & Tony Sansone, texti Kristmann Vilhjálmsson (duln.f. Hrafn Gunnlaugsson))
Skýið / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.