
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Þórir Baldursson. Þórir á langan glæstan feril, bæði hér á landi og erlendis þar sem hann hefur unnið með þekktasta tónlistarfólki landsins og heimsþekktum nöfnum eins og Donnu Summer, Giorgio Moroder, Elton John og Grace Jones. Hann er auðvitað einn þriðji af Savanna tríóinu sem naut strax mikilla vinsælda á sjöunda áratugnum. Við litum yfir ferilinn og ferðuðumst aftur í tímann með Þóri í þættinum frá tónleikum sem hann heldur núna 16.október í Austurbæjarbíói sem kallast Tónlistarheimur í meir en hálfa öld.
Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað, þar var kakósúparædd í dag og ekki voru allir sammála um ágæti hennar svo kíktum við aðeins í Eldhúsbókina góðu.
Tónlist í þættinum:
Brúðarskórnir / Savanna tríóið (Þórir Baldursson, texti Davíð Stefánsson)
C'est Magnifique / (La Bionda - Baldursson og Mazzoli)
Í töfrandi heimi / Kjalar Martinsson Kollmar (Þórir Baldursson, texti Kristján Hreinsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.