• 00:06:30Ragnheiður Gröndal - föstudagsgestur
  • 00:23:04Ragnheiður Gröndal - seinni hluti
  • 00:39:01Matarspjallið - dósamatur

Mannlegi þátturinn

Ragnheiður Gröndal föstudagsgestur og dósamatur í matarspjallinu

Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Hún lauk 7 stigum í klassískum píanóleik og eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 7 stig í jazzpíanóleik. Ragnheiður hefur síðan verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér allavega 10 sólóplötur. Við fórum um víðan völl með Ragnheiði í dag og fengum svo að heyra lifandi flutning þar sem eiginmaður hennar Guðmundur Pétursson kom og spilaði á gítar í beinni.

Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag var spjallið á almannavarnanótum í kjölfarið á átaki Almannavarna og Rauða krossins, 3dagar.is og spáðum aðeins í dósamatinn sem okkur er ráðlagt að hafa í viðlagakassanum góða. Hvaða dósamatur verður fyrir valinu?

Tónlist í þættinum:

Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)

Alveg sama hvað / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)

Er líða fer að jólum / Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson lifandi flutningur í hljóðveri nr. 6 (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,