• 00:06:22Valur Freyr - föstudagsgestur
  • 00:21:36Valur Freyr - seinni hluti
  • 00:40:46Matarspjallið - Helga Sigurðar frá 1947

Mannlegi þátturinn

Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Valur Freyr Einarsson, leikari og leikstjóri. Hann lærði leiklist í Manchester í Bretlandi og hefur leikið í ótal leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum síðan hann útskrifaðist 1995. Hann hlaut tvenn Grímuverðlaun árið 2012 fyrir leik og sem leikskáld ársins fyrir sýninguna Tengdó. Um síðustu helgi var stórsýningin Þegar Trölli stal jólunum frumsýnd, en Valur Freyr leikstýrir sýningunni. Við fórum út um víðan völl og fram og aftur um tímann með honum í dag.

Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við hlusta á innslag frá árinu 1954 þar sem Helga Sigurðardóttir kemur með heilræði fyrir húsmæður landsins þegar kemur að því að frysta mat. Við fengum mikil viðbrögð við tveimur stuttum innslögum með Helgu sem við spiluðum á mánudaginn í þættinum. Við flettum einnig í einni af hennar þekktustu bókum, Matur og drykkur sem kom út árið 1947.

Tónlist í þættinum:

Öldueðli / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

You're A Mean One, Mr. Grinch / Thurl Ravenscroft & Boris Karloff (Albert Hague, Eugene Poddany & Theodor Seuss Geisel)

You Can’t Always Get What You Want / Rolling Stones (Jagger & Richards)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,