• 00:06:39Margrét Reynisd. - kennir að hrósa
  • 00:22:41Vala og Axel - Sweeney Todd í Salnum
  • 00:37:35Lára V. Júlíusd. - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Að kunna að hrósa, Sweeney Todd í Salnum og Lára V. Júlíusd. lesandi vikunnar

Við ræddum um hrós í daglegu lífi í þættinum í dag. Hvers vegna erum við ekki duglegri við að hrósa öðrum? Margrét Reynisdóttir hefur í 20 ár unnið með fyrirtækjum að þjónustu og samskiptum og hún að það sé talsvert algengt að fólk sem hefur unnið mjög lengi á sama vinnustað án þess að hafa nokkurn tíma heyrt eitt einasta orð um hvernig þau stæðu sig, hvað þá hrós. Svo er ekki sama hvernig við hrósum. Við ræddum við Margréti í þættinum í dag.

Sweeney Todd, söngleikurinn um rakarinn sem myrðir fólk úr valdastétt Lundúnaborgar í slagtogi við bökugerðarkonu, var frumsýndur á laugardaginn, á Hrekkjavöku, af Sviðlistakórnum Viðlagi. Verkið er eitt af þekktustu verkum Stephen Sondheim og var fyrst sýnt fyrir hartnær fimmtíu árum.Axel Ingi Árnason stjórnandi kórsins og Vala Fannel leikstjóri komu til okkar í dag.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum er Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Lára talaði um eftirfarandi bækur og höfundar:

Þórarinn Eldjárn og ljóðabækur

Egilssögur- á meðan ég man, samtalsbók Páls Valssonar við Egil Ólafsson

Piparmeyjar, fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur

Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur

Strá fyrir straumi e. Erlu Huldu Halldórsdóttur

Leitin að tilgangi lífsins, e. Viktor E. Frankl, Páll Skúlason prófessor ritaði inngang að útgáfu bókarinnar á íslensku 1996.

Tónlist í þættinum:

Eitt lítið hrós / Jón Jónsson, Mugison og KK (Jón Jónsson)

Rainbow Connection / Kermit the Frog (Paul Williams & Kenneth Asher)

Sweeney Todd: Pretty Women / Bryn Terfel (Stephen Sondheim)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,