• 00:07:23Kristín og Helga - ME langvinnt Covid o.fl.
  • 00:31:14Eyrún og Heiðrún - Samfélagsgarðar

Mannlegi þátturinn

Ráðstefna um ME o.fl. og Samfélagsgarðar

Heimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim í næstu viku til að tala á ráðstefnunni Brú milli heimsálfa. Þetta eru leiðandi, innlendir og erlendir, sérfræðingar á sviði ME, langvinns Covid, umhverfisveikinda og POTS sem þar munu koma saman og miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. En áhugi á þessum sjúkdómum hefur aukist verulega á síðustu árum, ekki síst í kjölfar heimsfaraldursins. Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir kom ásamt Helgu F. Edwardsdóttur, formanni ME félags Íslands í þáttinn og sögðu okkur frá ráðstefnunni og stöðunni þegar kemur að þessum sjúkdómum.

Samfélagsgarðar hafa verið byggðir upp víða í nágrannalöndum með það að markmiði að nýta vannýtt svæði betur, skapa aðstæður fyrir meiri útiveru, efla tengsl fólks og bæta lífsgæði. Eyrún Gígja Káradóttir er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og hún skrifaði grein á miðilinn akureyri.net þar sem hún viðrar hugmynd sem áður hefur komið fram þar í bæ og bendir á að hægt sé að breyta vannýttu svæði í samfélagsgarð þar sem fólk á öllum aldri gæti komið saman, ræktað, hreyft sig og notið útiverunnar. Við ræddum við Eyrúnu og einnig við forstöðukonu matjurtagarða Akueyrar, Heiðrúnu Sigurðardóttur, en þær báður eru partur af hópi sem hefur verið myndaður um hugmyndina og vill þrýsta á bæjaryfirvöld að koma þessu í gagnið.

Tónlist í þættinum í dag:

Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)

Söngur um lífið / Rúnar Júlísson (Boudleaux Bryant, texti Rúnar Júlíusson

Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,