Litla flugan

Þáttur 18 af 26

Litla flugan dustar rykið af upptöku með harmonikuleikaranum Viktor Jankovic sem dvaldi hér á landi árið 1974. Fjórtán Fóstbræður syngja Sigurðar Þórarinssonar syrpu og Svannasyrpu. Síðan hljóma lög í flutningi kvintetts Art van Damme, hljómsveitar Magnúsar Péturssonar, básúnuleikaranum Tyree Glenn og sönghóp Lillian Clark.

Frumflutt

14. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,