Litla flugan

Þáttur 15 af 26

Litla flugan leitar víða fanga og spilar m.a. nokkrar syrpur leikin á rafmagnsorgel. Meðal flytjenda eru Sir Julian Gould og danshljómsveit Victors Sylvester. Haukur Morthens syngur tvö lög, Les Paul og Mary Ford taka við, síðan þýska söngkonan Caterine Valente og Elsa Sigfúss, sem syngur á dönsku.

Frumflutt

24. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,