Litla flugan

Þáttur 8 af 26

Litla flugan rifjar upp nokkur lög sem Ómar Ragnarsson hljóðritaði á sínum tíma. Einnig hljóma lög með Hljómsveit Ingimars Eydal og söngvurunum Þorvaldi Halldórssyni og Helenu Eyjólfsdóttur, Atlantic kvartettinum, Óðni Valdimarssyni og Sextetti Ólafs Gauks. Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. nóvember 2005

Frumflutt

12. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,