Litla flugan

Þáttur 12 af 26

Litla flugan dustar rykið af gömlum plötum. Þar á meðal eru plötur með þýskuu söngvurunum Katerine og Silvio, Hammondorgelleikaranum Klaus Wunderlich, ítalska harmonikuleikaranum Franco Scarica, ítölsku söngkonunni Katyna Ranieri, ítalskra klarinettuleikaranum Glauco Masetti og norsku söngvurunum Jan Haugland og Arne Bendiksen, sönkonurnar Kirsti Sparboe og Monica Zetterlund.

Frumflutt

3. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,