
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Gullsmiðurinn í Mjódd telur tjón vegna innbrots í verslunina í nótt nema að minnsta kosti þrjátíu milljónum - innbrotið hafi verið þaulskipulagt
Markmið um að halda hlýnun jarðar undir einni og hálfri gráðu á öldinni nást ekki úr því sem komið er - en verði brugðist skjótt við er hægt að halda hlýnun undir einni komma sjö gráðum segja vísindamenn.
Utanríkisráðherra Frakklands segir að Íranir standi á bak við netárásir á kælikerfi stórmarkaða sem leiddu til þess að matvæli fyrir milljónir evra eyðilögðust.
Mikið ber í milli í viðræðum Vesturbyggðar og Arnarlax um eldisgjald af lönduðum laxi. Markaðsstjóri fyrirtækisins segir 80 milljónir á ári allt of mikið fyrir þá þjónustu sem er veitt.
Og Hagstofan gerir ráð fyrir að íbúar landsins verði fimm hundruð og sextíu þúsund eftir hálfa öld.

Fréttir.