
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Formaður Geðhjálpar segir að fólk á hjúkrunarheimilum verði að mega hafna því að taka sterk geðlyf. Landlæknir segir notkun slíkra lyfja geta átt við undir öðrum kringumstæðum en þeim sem þau eru ætluð fyrir.
Valgerður Rúnarsdóttir snýr tímabundið aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. Hún segist vilja tryggja að SÁÁ og Sjúkratryggingar hafi frið til að vinna að endurskoðun samnings.
Atvinnuvegaráðherra fagnar því að Alþjóðahafrannsóknaráðið hafi í dag tvöfaldað ráðlagðan hámarksafla makríls fyrir næsta ár. Ekki sé þó enn ljóst hversu mikil áhrif það hafi á efnahag hér á landi og von sé á frekari viðræðum við strandríki í október.
Rússneska leyniþjónustan skipulagði morð á skákmeistaranum Garry Kasparov, að því er spænskur fjölmiðill greindi frá í dag. Bandarísk stjórnvöld eru sögð hafa varað hann við.
Fjölda pólitískra fanga hefur verið sleppt úr fangelsum í Venesúela. Margir þeirra voru dæmdir fyrir brot á lögum um hatursorðræðu, sem sitjandi forseti hvetur löggjafarþingið til að endurskoða.
Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir.

Fréttir