Úkraína, dómar og áföll, mótmæli í Frakklandi, deilur um gagnaver og borgarmál
Forseti Úkraínu vill þríhliða viðræður um stríðið í Úkraínu með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands. Hann sat í dag fund með erindrekum Bandaríkjastjórnar í Osló.
Útgöngubann hefur tekið gildi í nokkrum borgum í Frakklandi vegna óeirða undanfarna daga. Forsætisráðherrann segir ljóst að öfga vinstriöfl kyndi undir óróa.
Íslenskur skiptinemi í París segist lítið hafa fundið fyrir mótmælunum fyrr en í gær þegar heyrðust hvellir í nágrenninu.
Hæstiréttur getur gefið fordæmi fyrir túlkun dómstóla á samþykki í kynlífi. Sérfræðingur segir hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki.
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku fyrir neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða í landinu. Sviðsstjóri almannavarna á Íslandi útilokar ekki svipað fyrirkomulag hér.

Fréttir.