16:05
Síðdegisútvarpið
Svefnskortur ungmenna, sól og sæla á Kanaríeyjum og Siggi Pálma

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Íslenska gámafélagið er með risa opnunahátíð á Akureyri í dag. Þar á að kynna nýja stórbætta þjónustu við norðurland. Von er á um1200 manns. En hver er þessi stórbætta þjónusta? Jón Þór Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins var á línunni.

Svefnskortur ungmenna er orðið áhyggjuefni – og sífellt fleiri rök benda til þess að skynsamlegt sé að seinka upphafi skóladags. Í nýrri grein segir Dagur B. Eggertsson að langflestir framhaldsskólanemar fái ekki nægan svefn, með áhrifum á heilsu, líðan og námsárangur – og með því að seinka skólabyrjun væri jafnvel hægt að létta á morgunumferðinni. Dagur kom í Síðdegisútvarpið

Nú flykkjast íslendingar til Kanarí; bæði til eyjunnar Gran Canaria og líka til Tenerife enda páskafrí framundan. Veðrið hefur nú ekki verið að leika við eyjaskeggja undanfarið en það horfir allt til betri vegar. Við hringdum til Tenerife og heyrðum í Níels Hafsteinssyni, sem rekur þar barinn og veitingahúsið Smoke Bro’s.

Við heyrðum líka brot úr Rokklands þætti Óla Palla sem verður á sunnudaginn en gestur hans verður Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.

Föstudagsgesturinn okkar í dag er Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins. Við ræddum við hann um viðburðarríkt ár en rúmt ár er síðan hann settist á þing í fyrsta skipti.

Mikil uppbygging er framundan á Suðurnesjum og áhuginn virðist fara hratt vaxandi. Nýlega var kynnt metnaðarfull framtíðarsýn þar sem horft er til stórra verkefna – bæði í atvinnuuppbyggingu og húsnæði, meðal annars í Helguvík og á Ásbrú .Kadeco,er þróunarfélag sem sér um uppbyggingu og þróun svæðanna á Ásbrú og í Helguvík, hefur verið í lykilhlutverki í þessari vinnu.En hvað felst þessi uppbygging í raun og veru – hvaða verkefni eru á teikniborðinu og hversu langt eru þau komin? Við heyrðum í Pálma Frey Randverssyni framkvæmdastjóra Kadeco í þættinum.

Hljómsveitin úr austfirsku þokunni, SúEllen, er vöknuð úr dvala og von er á nýrri plötu með þeim. Og nóg að gera í tónleikahaldi um páskana en þeir ætla að þjófstarta þeim á Græna hattinum í kvöld. Guðmundur Rafnkell Gíslason söngvari SúEllenar var á línunni og við heyrð um nýtt lag með þeim.

Og í lok þáttar heyrum við í Gísla Marteini og Berglindi Festial beint frá Akureyri en þaðan er Vikan send út í kvöld.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,