Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Í dag verjum við deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt.
Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.