12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 27.mars 2026

Útvarpsfréttir.

Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins gagnrýna fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar harðlega og forseti ASÍ segir fátt í henni koma til móts við almenning.

Hagfræðingur telur skattalækkanir geta verið skammtímalausn til að standast forsenduákvæði kjarasamninga, en leysi ekki einar og sér verðbólguvandann. Pólsk stjórnvöld ætla að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti.

Fólkaflokkurinn er sigurvegari lögþingskosninga í Færeyjum. Formaður flokksins er 29 ára og yrði yngsti lögmaður í sögu Færeyja.

Ekkert kom fram við rannsókn sem styður grun um kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Akureyri, að sögn lögreglu.

Veðurstofan varar við norðan- og norðvestan hríð víða um land í dag. Ekkert flugveður er á Ströndum svo póstatkvæði í sameiningarkosningum berast ekki með flugi á Gjögur.

Bandaríska stríðsmálaráðuneytið er sagt skoða að senda tíu þúsund hermenn til viðbótar til Mið-Austurlanda. Donald Trump segir friðarviðræður ganga vel en Íranar segja að engar viðræður hafi átt sér stað.

Hljómsveitin Kaleo stefnir að því að halda 20 þúsund manna tónleika á Þingvöllum í sumar. Þjóðgarðsvörður bindur vonir við að tónleikarnir laði að nýja hópa.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,