07:03
Morgunvaktin
Selfosskirkja, skák og sígild tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

70 ár eru frá vígslu Selfosskirkju, þess glæsilega guðshúss á sínum einstak stað við Ölfusána. Hátíðarmessa verður á sunnudaginn, biskup Íslands predikar. Gunnar Jóhannesson, einn prestanna þar, spjallaði við okkur um kirkjuna, trúna og byggingafræði. Hann lauk námi í henni og sinnir í frístundum.

Svo var kóngspeðinu leikið fram um tvo reiti þegar Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, kom í heimsókn. Reykjavíkurskákmótið hófst í Hörpu í fyrradag, yfir 400 skákmenn taka þátt. Við ræddum um mótið og skáklífið í landinu.

Svo var það sígilda tónlistin. Það líður að páskum og af því tilefni fjallaði Magnús Lyngdal um páskatónlist. Við heyrðum meðal annars verk eftir Bach og Haydn.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-03-27

Una Stefánsdóttir, Stefán S. Stefánsson - Vorlauf.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,