11:03
Mannlegi þátturinn
Agnar Jón Egilsson föstudagsgestur, Matarspjall með Sigurlaugu Margréti

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Já það er föstudagur og gul viðvörun í gangi víða. Við látum það ekki á okkur fá og fögnum föstudagsgesti dagsins og sá er dósent við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hann er einnig leikstjóri og höfundur, hann stofnaði Leynileikhúsið á sínum tíma og er,eins og vinir hans segja, alltaf önnum kafinn náungi.

Núna í vetur leikstýrði hann leikritinu Mömmó sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Við töluðum við Agnar Jón Egilsson .

Svo er það Matarspjallið og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir velti fyrir sér fyndnum mat.

Tónlist í þættinum í dag:

Landbúnaða Lísa/Stuðmenn(Valgeir Guðjónsson)

You make me feel/Jimmy Sommerville

Lithium/Nirvana

MANNLEGI ÞÁTTURINN FÖSTUDAGUR 27.MARS 2026

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,