18:00
Kvöldfréttir útvarps
Segir óvissu í grein sem skilar milljörðum í hagnað

Fréttir

Fréttir

Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir stöðuna í greininni sterka. Mikil óvissa sé þó vegna umróts á alþjóðavettvangi.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála segir misbrest hafa orðið í vinnslu þónokkurra mála hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar.

Erlendri snekkju sem meinuð var hafnarkoma síðustu helgi á Akureyri var í dag leyft að taka olíu og sækja vistir í landi undir eftirliti lögreglu.

Stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku eru hafnar. Búist er við að þær verði flóknar enda hvorki vinstri- né hægriblokkin á Stórþinginu með meirihluta. Lars Løkke Rasmussen er sem fyrr í lykilstöðu.

Skýrari forgangsröðun og meira svigrúm til að ná niður verðbólgu vantar í fjármálaáætlun að mati Lilju Alfreðsdóttur. Hún segir þörf á alvöru efnahagsaðgerðum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,