20:30
Víðsvegar
Hvernig nýtum við skógana okkar?

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.

Skógar á Íslandi hafa vaxið mikið á undanförnum árum og innan skamms gæti farið að myndast öflugur iðnaður í kringum þá. En hvernig nýtum við skógana í dag og hvað ber framtíðin í skauti sér?

Viðmælendur:

Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógum.

Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta.

Magnús Þorsteinsson, sölu- og innkaupastjóri Tandrabretta og skógarbóndi.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 49 mín.
  • Endurflutt
,